Beint í efni
Hnotskurninn

Mál2019

Æðavarp í landi Kollaleiru

Mál 1905042 Fyrst á dagskrá 20. maí 2019, síðast 11. júní 2019. 4 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd.

Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.

Ferill málsins

  • Málið var á dagskrá fundar
  • Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
Leið málsins í tímaröð, frá vinstri til hægri. Hver lína er ein nefnd eða ráð. Feita línan tengir fundina þar sem málið sjálft var á dagskrá. Guli reiturinn er síðasta færslan. Ýttu á punkt til að sjá færsluna.
  1. 2019

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd, fundur 234 liður 4

    Lagt fram bréf Sigurðar Baldurssonar, dagsett 6. maí 2019, er varðar endurnýjun á leyfi til að nýta æðarvarp í landi Kollaleiru. Vísað til nefndarinnar frá bæjarráði til umsagnar.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd telur að leyfi það sem veitt var 2007 af bæjarstjórn, þar sem heimilað var að nýta hlunnindi við Sléttuárósa standi(þ.e. sunnan sauðfjárveikivarnargirðingar) en getur ekki mælt með stækkun svæðisins eða friðlýsingu æðarvarps á landsvæði sveitarfélagsins með tilheyrandi takmörkunum á aðgengi og starfsemi á hafnarsvæðinu.

  2. Bæjarráð, fundur 616 liður 16.4

    Fundargerðin „Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 234“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is

  3. Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd, fundur 235 liður 13

    Lagt fram bréf Sigurðar Baldurssonar, dagsett 27. maí 2019, er varðar heimild til nýtingar tveggja varpstaða sem eru norðan sauðfjárveikivarnarlínu en í bókun eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar frá 20. maí 2019 er miðað við að afmörkun nýtingar hlunninda sé sunnan línunnar.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd gerir ekki athugasemdir við að umrædd varpsvæði verði nýtt en það verði án allra takmarkana á annarri nýtingu eða umgengni um svæðin. Komi til önnur nýting á svæðinu fellur heimildin niður.

  4. Bæjarráð, fundur 619 liður 14.13

    Fundargerðin „Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 235“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is