NefndirEigna-, skipulags- og umhverfisnefnd
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd, fundur 234
20. maí 2019, kl. 16:00 til 17:30, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Valur Sveinsson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (5)
Fundinn sátu
- Einar Már Sigurðarson, formaður
- Esther Ösp Gunnarsdóttir, aðalmaður
- Ívar Dan Arnarson, aðalmaður
- Jón Björn Hákonarson, aðalmaður
Starfsmenn
- Valur Sveinsson, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarráð, fundur 616 liður 16
Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar, nr. 234 frá 20.maí 2019, lögð fram til umfjöllunar.
Dagskrá
-
1. Fóstrun svæðis - Stekkjabrekka 18 Rey.
Mál 1905098 Allur ferill málsins
Lögð fram beiðni Kristjáns Vals Sigurðssonar, dagsett 17. maí 2019, um heimild til að taka svæði í fóstur sunnan lóðar hans að Stekkjabrekku 18 á Reyðarfirði og gróðursetja þar nokkur barrtré.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir beiðnina.
-
2. Búfjárhald og búfjársamþykkt
Mál 1811014 Allur ferill málsins
Lögð fram drög að búfjársamþykkt ásamt veittum umsögnum. Drögin voru send út til kynningar 4. apríl 2019 og umsagnarfrestur veittur til 15. apríl 2019. Þrjár umsagnir bárust, tvær á vegum hesteigandafélaga og ein frá einstaklingi.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd fór yfir athugasemdir sem borist hafa og gerði breytingar. Umhverfisstjóra er falið að vinna endanlega útfærslu búfjársamþykktar og leggja fyrir nefndina að nýju.
-
3. 750 Stekkholt 12 - umsókn um lóð
Mál 1905062 Allur ferill málsins
Lögð fram að nýju lóðarumsókn Paulius Naucius, dagsett 9. maí 2019, þar sem sótt er um lóðina við Stekkholt 12 á Fáskrúðsfirði undir íbúðarhúsnæði. Grenndarkynningu er lokið með samþykki nágranna.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir, fyrir sitt leyti, að úthluta lóðinni og vísar umsókninni til bæjarráðs til endanlegrar afgreiðslu.
-
4. Æðavarp í landi Kollaleiru
Mál 1905042 Allur ferill málsins
Lagt fram bréf Sigurðar Baldurssonar, dagsett 6. maí 2019, er varðar endurnýjun á leyfi til að nýta æðarvarp í landi Kollaleiru. Vísað til nefndarinnar frá bæjarráði til umsagnar.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd telur að leyfi það sem veitt var 2007 af bæjarstjórn, þar sem heimilað var að nýta hlunnindi við Sléttuárósa standi(þ.e. sunnan sauðfjárveikivarnargirðingar) en getur ekki mælt með stækkun svæðisins eða friðlýsingu æðarvarps á landsvæði sveitarfélagsins með tilheyrandi takmörkunum á aðgengi og starfsemi á hafnarsvæðinu.
-
5. Aðalfundur Fiskiræktar og veiðifélags Norðfjarðarár 8.maí 2019
Mál 1904171 Allur ferill málsins
Lögð fram til kynningar áskorun frá Veiðifélagi Norðfjarðarár um verndun lífríkis árinnar, dagsett 13. maí 2019, sem samþykkt var á aðalfundi félagsins 8. maí 2019. Skorað er á bæjarstjórn að taka fullt tillit til verndunar lífríkis árinnar í þeirri vinnu sem nú fer fram við endurskoðun aðalskipulags og að efnistöku í Norðfjarðará verði hætt og að hún verði óheimil í ánni og allt að 100 m frá bökkum hennar.
-
6. Eftirlitsmyndavélar
Mál 1809076 Allur ferill málsins
Bæjarstjóri átti fund með fulltrúum Lögreglustjórans á Austurlandi á dögunum og leggur í framhaldi af fundinum fram endurnýjaða útreikninga vegna uppsetninga öryggismyndavéla í sveitarfélaginu. Bæjarráð hefur samþykkt að hefja verkefnið með uppsetningu á öryggismyndavél við gatnamót Suðurfjarðarvegar og Norðfjarðarvegar í Reyðarfirði.
Vísað til kynningar í eigna- skipulags- og umhverfisnefnd.