Umgengnis- og umhverfismál
Mál 1905138 Fyrst á dagskrá 27. maí 2019, síðast 11. júní 2019. 3 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd.
Í heiti málsins: Umhverfi og veitur
Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.
Ferill málsins
- Málið var á dagskrá fundar
- Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
-
2019
Bæjarráð, fundur 616 liður 14
Bæjarráð Fjarðabyggðar felur bæjarstjóra, sviðsstjóra framkvæmdasviðs og eftir atvikum eigna- skipulags- og umhverfisnefnd að fara yfir bifreiða- og tækjakost sveitarfélagsins með hagræði og notkun í huga. Horfa skal sérstaklega á vistvænari farartæki, ef kostur er, við endurnýjun og losa út eyðslufrekar bifreiðar og tæki. Þá jafnframt skal skilgreina kröfur sveitarfélagsins til verktaka sem fyrir það vinna hvað varðar búnað tækja þeirra, tryggingar, umgengni og aðra samfélagslega ábyrgð. Þá skal horft til gerðar umhverfisstefnu Fjarðabyggðar við útfærslu þessa.
-
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd, fundur 235 liður 6
Lögð fram bókun bæjarráðs frá 27. maí síðastliðinn. Bæjarráð Fjarðabyggðar felur bæjarstjóra, sviðsstjóra framkvæmdasviðs og eftir atvikum eigna- skipulags- og umhverfisnefnd að fara yfir bifreiða- og tækjakost sveitarfélagsins með hagræði og notkun í huga. Horfa skal sérstaklega á vistvænari farartæki, ef kostur er, við endurnýjun og losa út eyðslufrekar bifreiðar og tæki. Þá jafnframt skal skilgreina kröfur sveitarfélagsins til verktaka sem fyrir það vinna hvað varðar búnað tækja þeirra, tryggingar, umgengni og aðra samfélagslega ábyrgð. Þá skal horft til gerðar umhverfisstefnu Fjarðabyggðar við útfærslu þessa.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd felur sviðsstjóra framkvæmdasviðs að vinna tillögu að endurskipulagningu bifreiða- og tækjakosts sveitarfélagsins og leggja fyrir nefndina að nýju.
-
Bæjarráð, fundur 619 liður 14.6
Fundargerðin „Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 235“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.