750 Víkurgerði - Framkvæmdaleyfi, skógrækt
Mál 1905140 Fyrst á dagskrá 29. maí 2019, síðast 8. júlí 2019. 4 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd.
Í heiti málsins: Byggingar og framkvæmdir
Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.
Ferill málsins
- Málið var á dagskrá fundar
- Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
-
2019
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd, fundur 235 liður 25
750 Víkurgerði - Skógrækt
Lagt fram bréf Jónínu Guðrúnar Óskarsdóttur, dagsett 22. maí 2019, þar sem tilkynnt er um skógræktarsamning á jörðinni Víkurgerði í Fáskrúðsfirði, jafnframt er óskað svara á því hvort framkvæmdaleyfis í samræmi við reglugerð 772/2012 um framkvæmdaleyfi sé krafist. Þá er óskað svara á því hvort heimilt sé að hefja framkvæmdir við 48 ha skógrækt á jörðinni.
Umrætt svæði er innan reits O20/N8/Hv6 í Aðalskipulagi Fjarðabyggðar 2007-2027. Svæðið er því samkvæmt aðalskipulagi opið svæði til sérstakra nota, náttúruverndarsvæði og hverfisverndarsvæði. Lagt fram minnisblað sviðsstjóra umhverfis- og skipulagssviðs vegna skipulagsskilmála innan reitsins O20/N8/Hv6.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd frestar afgreiðslu.
-
Bæjarráð, fundur 619 liður 14.25
Fundargerðin „Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 235“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.
750 Víkurgerði - Skógrækt
-
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd, fundur 237 liður 10
Lagt fram að nýju bréf Jónínu Guðrúnar Óskarsdóttur, dagsett 22. maí 2019, þar sem tilkynnt er um skógræktarsamning á jörðinni Víkurgerði í Fáskrúðsfirði, jafnframt er óskað svara á því hvort framkvæmdaleyfis í samræmi við reglugerð 772/2012 um framkvæmdaleyfi sé krafist. Þá er óskað svara á því hvort heimilt sé að hefja framkvæmdir við 48 ha skógrækt á jörðinni.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd telur að framkvæmdin sé ekki framkvæmdaleyfisskyld og gerir ekki athugasemdir við að 48 ha skógrækt hefjist í landi Víkurgerðis.
-
Bæjarráð, fundur 623 liður 11.10
Fundargerðin „Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 237“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.