Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirFræðslunefnd

Fræðslunefnd, fundur 71

5. júní 2019, kl. 16:30 til 17:30, í Molanum fundarherbergi 1 og 2. Fundargerð ritaði Þóroddur Helgason.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (9)

Fundinn sátu

  • Sigurður Ólafsson, formaður
  • Sævar Örn Arngrímsson, aðalmaður
  • Jóhanna Sigfúsdóttir, aðalmaður
  • Þuríður Lillý Sigurðardóttir, aðalmaður
  • Alma Sigurbjörnsdóttir, áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Gerður Ósk Oddsdóttir, áheyrnarfulltrúi
  • Bryndís Guðmundsdóttir, áheyrnarfulltrúi
  • Þóroddur Helgason, embættismaður
  • Ásta Ásgeirsdóttir, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 619 liður 16

    Fundargerð fræðslunefndar, nr. 71 frá 5.júní 2019, lögð fram til umfjöllunar.

Dagskrá

  1. 1. Velferð barna - Unicef á íslandi

    Mál 1905105 Allur ferill málsins

    Vísað til kynningar í fræðslunefnd áskorun frá UNICEF á Íslandi. UNICEF hvetur öll sveitarfélög til að setja sér heildstætt og samræmt verklag, ef upp kemur grunur um ofbeldi og vanrækslu hjá stofnunum sem starfa með börnum. Fræðslunefnd tekur undir erindi UNICEF og vísar því til úrvinnslu sviðstjóra fjölskyldusviðs.

  2. 2. Hvað höfum við gert?

    Mál 1905163 Allur ferill málsins

    Framleiðendur þáttaraðarinnar Hvað höfum við gert? sem framleidd er af Sagafilm fyrir Félag Sameinuðu þjóðanna á Íslandi og sýnd hefur verið á RÚV á vormánuðum, vilja gera sveitarfélögum kleift að gera sambærilegan samning og gerður var við Reykjavíkurborg um afnot af þáttaröðinni. Í bréfi frá framleiðendum kemur fram að þetta sé gert í ljósi mikilvægi þess að nemendur um land allt hafi aðgang að efninu, sem fjallar ítarlega um þær áskoranir sem mannkynið stendur frammi fyrir í loftslagsmálum. Samningurinn er um sýningarrétt næstu 7 árin á 10 þáttum sem RÚV sýndi í vetur. Fræðslustjóri hefur rætt við skólastjórnendur sem lýsa áhuga á gerð samnings. Fræðslunefnd felur fræðslustjóra að ganga frá samningi fyrir hönd sveitarfélagsins og halda kostnaði innan samþykkts fjárhagsramma til fræðslumála.

  3. 3. Snemmtæk íhlutun í leikskólum

    Mál 1810118 Allur ferill málsins

    Bæjarstjóri Fjarðabyggðar, Karl Óttar Pétursson, og Menntamálastofnun undirrituðu samstarfssamning 15. maí síðastliðinn um snemmtæka íhlutun og læsi í leikskóla. Verkefnið er í samræmi við læsisstefnu Fjarðabyggðar, Læsi er lykillinn, og Þjóðarsáttmála um læsi. Með samstarfsverkefninu mun Fjarðabyggð taka þátt í að efla málþroska og læsi barna auk þess að valdefla starfsfólk leikskólanna með aðferðum snemmtækrar íhlutunar.

    Verkefnið fór af stað með námskeiði sem haldið var 15. maí fyrir tengiliði í hverjum leikskóla og kennsluráðgjöfum Skólaskrifstofu Austurlands. Föstudaginn 23.ágúst eftir hádegi verður haldið námskeið fyrir alla starfsmenn leikskólanna, en það kallar á breytingar á skóladagatölum skólanna. Fræðslunefnd samþykkir breytingu á skóladagatölum skólanna, þannig að hálfur skipulagsdagur verði í öllum leikskólum Fjarðabyggðar. Skipulagsdagar á skólaárinu verða þá fimm og hálfur dagur í stað fimm.

  4. 4. Starfs- og fjárhagsáætlun fræðslunefndar 2020

    Mál 1904133 Allur ferill málsins

    Fræðslunefnd ræddi áherslur í starfs- og fjárhagsáætlun fyrir árið 2020 og fól fræðslustjóra að senda tillögu að starfsáætlun og breytingum á þjónustu til fjármálasviðs byggðar á umræðu nefndarinnar.

  5. 5. Breyting á skóladagatölum skólaárið 2019-2020

    Mál 1906029 Allur ferill málsins

    Borist hefur beiðni frá leikskólanum Lyngholti um að færa til skipulagsdag sem vera á þann 21. ágúst til 8. ágúst, þar sem verið er að taka í notkun nýja deild og starfsfólk þarf að tæma elsta hluta leikskólans. Foreldraráð skólans hefur samþykkt beiðnina fyrir sitt leyti. Fræðslunefnd samþykkir beiðnina.