Beint í efni
Hnotskurninn

Mál2019

Hvað höfum við gert?

Mál 1905163 Fyrst á dagskrá 5. júní 2019, síðast 11. júní 2019. 2 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Fræðslunefnd.

Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.

Ferill málsins

  • Málið var á dagskrá fundar
  • Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
Leið málsins í tímaröð, frá vinstri til hægri. Hver lína er ein nefnd eða ráð. Feita línan tengir fundina þar sem málið sjálft var á dagskrá. Guli reiturinn er síðasta færslan. Ýttu á punkt til að sjá færsluna.
  1. 2019

    Fræðslunefnd, fundur 71 liður 2

    Framleiðendur þáttaraðarinnar Hvað höfum við gert? sem framleidd er af Sagafilm fyrir Félag Sameinuðu þjóðanna á Íslandi og sýnd hefur verið á RÚV á vormánuðum, vilja gera sveitarfélögum kleift að gera sambærilegan samning og gerður var við Reykjavíkurborg um afnot af þáttaröðinni. Í bréfi frá framleiðendum kemur fram að þetta sé gert í ljósi mikilvægi þess að nemendur um land allt hafi aðgang að efninu, sem fjallar ítarlega um þær áskoranir sem mannkynið stendur frammi fyrir í loftslagsmálum. Samningurinn er um sýningarrétt næstu 7 árin á 10 þáttum sem RÚV sýndi í vetur. Fræðslustjóri hefur rætt við skólastjórnendur sem lýsa áhuga á gerð samnings. Fræðslunefnd felur fræðslustjóra að ganga frá samningi fyrir hönd sveitarfélagsins og halda kostnaði innan samþykkts fjárhagsramma til fræðslumála.

  2. Bæjarráð, fundur 619 liður 16.2

    Fundargerðin „Fræðslunefnd - 71“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is