Fræðslunefnd, fundur 70
28. maí 2019, kl. 16:30 til 18:30, í Molanum fundarherbergi 3. Fundargerð ritaði Þóroddur Helgason.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (8)
Fundinn sátu
- Sigurður Ólafsson, formaður
- Birta Sæmundsdóttir, aðalmaður
- Sævar Örn Arngrímsson, aðalmaður
- Jóhanna Sigfúsdóttir, aðalmaður
- Þuríður Lillý Sigurðardóttir, aðalmaður
- Alma Sigurbjörnsdóttir, áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Þóroddur Helgason, embættismaður
- Ásta Ásgeirsdóttir, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarráð, fundur 617 liður 10
Fundargerð fræðslunefndar, nr. 70 frá 28.maí 2019, lögð fram til umfjöllunar.
Dagskrá
-
1. Stefnumörkun í fræðslu- og frístundamálum í Fjarðabyggð
Mál 1808078 Allur ferill málsins
Þessi dagskrárliður var tekinn fyrir á sameiginlegum fundi fræðslunefndar og íþrótta- og tómstundanefndar. Farið var yfir fyrirliggjandi drög að endurskoðaðri fræðslu- og frístundastefnu Fjarðabyggðar, sem starfshópur sem sér um endurskoðunina hefur skilað af sér. Fyrir liggur að halda kynningarfund í Fjarðabyggð þar sem íbúum gefst kostur á að fjalla um stefnuna. Einnig verður stefnan tekin fyrir í nefndum og hjá ungmennaráði áður en hún fer til bæjarráðs og bæjarstjórnar til samþykktar. Fræðslunefnd samþykkir drögin.
-
2. Tómstundir eldri borgara
Mál 1905092 Allur ferill málsins
Fyrir liggur minnisblað félagsmálastjóra sem vísað var til umfjöllunar í fræðslunefnd og varðar tómstundir aldraðra. Félagsmálastjóri leggur til í minnisblaðinu að þrjár nefndir fjölskyldusviðs athugi í kjölfar endurskoðunar fræðslu- og frístundastefnu hvort mögulegt væri að ráða til starfa tómstundafræðing sem væri faglegur ráðgjafi eldri borgara í
tómstundamálum að hluta til en myndi að öðru leyti sinna málefnum yngri aldurshópa samkvæmt áherslum fræðslunefndar og íþrótta- og tómstundanefndar. Fræðslunefnd vísar málinu til þeirrar umræðu sem nú fer fram um endurskoðun fræðslu- og frístundastefnu Fjarðabyggðar og áherslur árin 2020-2022.
-
3. Starfs- og fjárhagsáætlun fræðslunefndar 2020
Mál 1904133 Allur ferill málsins
Farið var yfir áherslur í starfs- og fjárhagsáætlun í fræðslumálum fyrir árið 2020, frekari umræðu frestað til næsta fundar.