Bæjarráð, fundur 610
15. apríl 2019, kl. 08:30 til 10:30, í Molanum fundarherbergi 3. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)
Fundinn sátu
- Eydís Ásbjörnsdóttir, formaður
- Jón Björn Hákonarson, varaformaður
- Rúnar Már Gunnarsson, áheyrnarfulltrúi
- Ragnar Sigurðsson, varamaður
Starfsmenn
- Karl Óttar Pétursson, bæjarstjóri
- Gunnar Jónsson, embættismaður
Dagskrá
-
1. Stjórnsýsluskoðun Fjarðabyggðar 2018
Mál 1902046 Allur ferill málsins
Framlögð skýrsla KPMG vegna stjórnsýsluskoðunar 2018. Um er að ræða minniháttar ábendingar.
Bæjarstjóra falið að fylgja eftir ábendingum með sviðsstjórum.
-
2. Reglur um garðslátt fyrir öryrkja og ellilífeyrisþega
Mál 1806144 Allur ferill málsins
Vísað frá félagsmálanefnd til afgreiðslu bæjarráðs endurbættum drögum að reglum um garðslátt fyrir öryrkja og ellilífeyrisþega þar sem athugasemdir nefndar frá síðasta fundi eru teknar til greina.
Bæjarráð samþykkir reglurnar með breytingum og vísar þeim kynningar í félagsmálanefnd og eigna- skipulags- og umhverfisnefndar og til staðfestingar bæjarstjórnar. Jafnframt vísar bæjarráð til eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar gerð gjaldskrár fyrir þjónustu.
-
3. Reglur um snjómokstur fyrir öryrkja og ellilífeyrisþega
Mál 1904081 Allur ferill málsins
Vísað frá félagsmálanefnd til afgreiðslu bæjarráðs endurbættum drögum að reglum um snjómokstur fyrir öryrkja og ellilífeyrisþega þar sem athugasemdir nefndar frá síðasta fundi eru teknar til greina.
Bæjarráð samþykkir reglurnar með breytingum og vísar þeim kynningar í félagsmálanefnd og eigna- skipulags- og umhverfisnefndar og til staðfestingar bæjarstjórnar. Jafnframt vísar bæjarráð til eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar gerð gjaldskrár fyrir þjónustu.
-
4. 735 Leirukrókur 4 - umsókn um lóð
Mál 1904020 Allur ferill málsins
Vísað frá eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd til staðfestingar bæjarráðs lóðarumsókn Fjarðabyggðar, dagsett 2. apríl 2019, þar sem sótt er um lóðina við Leirukrók 4 á Eskifirði undir móttökustöð á sorpi.
Bæjarráð samþykkir úthlutun lóðarinnar.
-
5. Reglur um kjör kjörinna fulltrúa
Mál 1806177 Allur ferill málsins
Lögð er til endurskoðun á reglum um kjör kjörinna fulltrúa hjá Fjarðabyggð þar sem bætt er við reglurnar heimild til greiðslu nefndarlauna til kjörinna fulltrúa sveitarfélagsins í öldungaráði.
Bæjarrá samþykkir endurskoðaðar reglur og vísar þeim til staðfestingar bæjarstjórnar.
-
6. Ljósleiðaravæðing 2019 - umsóknir
Mál 1811036 Allur ferill málsins
Framlagt sem trúnaðarmál minnisblað um ljósleiðaraverkefni Fjarðabyggðar á árinu 2019.
Máli vísað til eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar til kynningar. Bæjarráð samþykkir að boðin verði út lagning ljósleiðara þar sem tengdir verði 32 tengistaðir í Norðfjarðarsveit og í botni Eskifjarðar ásamt reksturs ljósleiðarakerfisins. Jafnframt að hafinn verði undirbúningur að útboði sölu og reksturs ljósleiðarakerfis í Breiðdal.
-
7. Samvinna um framtíðaruppbyggingu seiðaeldis í landi Flateyrar í Reyðarfirði
Mál 1904068 Allur ferill málsins
Framlagt erindi Laxa frá 8. apríl er varðar samvinnu um framtíðaruppbyggingu seiðaeldis í landi Flateyrar í Reyðarfirði.
Bæjarráð samþykkir að hefja viðræður við Laxa hf. og felur bæjarstjóra að vinna málið áfram með atvinnu- og þróunarstjóra.
-
8. Almenningssamgöngur í Fjarðabyggð
Mál 1904072 Allur ferill málsins
Framlagt minnisblað bæjarstjóra um stofnun starfshóps um almenningssamgöngur í Fjarðabyggð.
Bæjarráð samþykkir tillögu bæjarstjóra og skipar starfshóp um verkefnið. Starfshópinn skipi Karl Óttar Pétursson bæjarstjóri, Gunnar Jónsson bæjarritari, Þórður Vilberg Guðmundsson upplýsingafulltrúi, Valgeir Ægir Ingólfsson atvinnu- og þróunarstjóri auk Eydísar Ásbjörnsdóttur formanns bæjarráðs og Pálínu Margeirsdóttur formanns íþrótta- og tómstundanefndar.
-
9. Skýrsla Ríkisendurskoðunar um samanburð sýslumannsembætta
Mál 1902214 Allur ferill málsins
Framlögð til kynningar skýrsla Ríkisendurskoðunar um samanburð milli embætta sýslumanna.
-
10. 784.mál til umsagnar frumvarp til laga um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald (stjórnvaldssektir og eftirlit með gististarfsemi)
Mál 1904091 Allur ferill málsins
Atvinnuveganefnd Alþingis sendir til umsagnar frumvarp til laga um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald (stjórnvaldssektir og eftirlit með gististarfsemi), 784. mál. Umsagnarfrestur er til 2. maí nk.
Vísað til umfjöllunar í eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd. Sviðsstjóra umhverfis- og skipulagssviðs falið að yfirfara frumvarpið og skila umsögn ef þurfa þykir.
-
11. Fundarboð Stapa miðvikudaginn 8.maí nk.
Mál 1904062 Allur ferill málsins
Framlagt boð á ársfundur Lífeyrissjóðsins Stapa verður haldinn miðvikudaginn 8. maí kl. 14:00 á Akureyri.
-
12. Fundagerðir stjórnar SSA 2019
Mál 1903047 Allur ferill málsins
Fundargerð 10.fundar stjórnar SSA frá 12.mars 2019, lögð fram til kynningar.
-
13. Aðalfundur SSA 7.maí 2019
Mál 1904047 Allur ferill málsins
Boðað er til að aðalfundar Sambands sveitarfélaga á Austurlandi 7. maí 2019 kl 10:00. á Egilsstöðum.
Fulltrúar Fjarðabyggðar sækja fundinn í samræmi við kjör þeirra.
-
14. Íþrótta- og tómstundanefnd - 59
Fundargerð íþrótta- og tómstundanefndar, nr. 59 frá 9.apríl 2019, lögð fram til umfjöllunar.
- 14.1 Ungt fólk og lýðræði 2019
- 14.2 Endurskoðun Menningarstefnu Fjarðabyggðar
- 14.3 Ástand húsnæða í félagsmiðstöðvum Fjarðabyggðar
- 14.4 Úthlutun Íþróttastyrkja 2019
- 14.5 Stefnumörkun í fræðslu- og frístundamálum í Fjarðabyggð
-
15. Landbúnaðarnefnd - 22
Fundargerð landbúnaðarnefndar, nr. 22 frá 4.apríl 2019, lögð fram til umfjöllunar.
- 15.1 Umhverfisstefna Fjarðabyggðar1704067
- 15.2 Endurskoðuð fjallskilasamþykkt1903139
- 15.3 Hrafnar við gámaþjónustusvæðið á Reyðarfirði1904007
-
16. Öldungaráð - 1
Fundargerð öldungaráðs nr. 1 frá 9.apríl 2019, lögð fram til umfjöllunar.
- 16.1 Nefndaskipan í Fjarðabyggð 2018 - 20221806029
- 16.2 Erindisbréf öldungaráðs1805131
- 16.3 Stefnumörkun í fræðslu- og frístundamálum í Fjarðabyggð1808078
- 16.4 Öldungaráð 2018 - ný og breytt ákvæði1806076