784.mál til umsagnar frumvarp til laga um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald (stjórnvaldssektir og eftirlit með gististarfsemi)
Mál 1904091 Fyrst á dagskrá 15. apríl 2019, síðast 29. apríl 2019. 3 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd.
Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.
Ferill málsins
- Málið var á dagskrá fundar
- Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
-
2019
Bæjarráð, fundur 610 liður 10
Atvinnuveganefnd Alþingis sendir til umsagnar frumvarp til laga um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald (stjórnvaldssektir og eftirlit með gististarfsemi), 784. mál. Umsagnarfrestur er til 2. maí nk.
Vísað til umfjöllunar í eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd. Sviðsstjóra umhverfis- og skipulagssviðs falið að yfirfara frumvarpið og skila umsögn ef þurfa þykir.
-
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd, fundur 231 liður 3
Lögð fram beiðni atvinnuveganefndar Alþingis, dagsett 12. apríl 2019, um umsögn um frumvarp til laga um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald (stjórnvaldssektir og eftirlit með gististarfsemi), 784. mál. Umsagnarfrestur er til 2. maí nk.
Vísað til umfjöllunar nefndarinnar frá bæjarráði.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd telur ekki ástæðu til að nýta umsagnarréttinn.
-
Bæjarráð, fundur 611 liður 20.3
Fundargerðin „Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 231“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.