735 Strandgata 65 - Byggingarleyfi, endurbygging
Mál 1904112 Fyrst á dagskrá 23. apríl 2019, síðast 29. apríl 2019. 2 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd.
Í heiti málsins: Byggingar og framkvæmdir
Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.
Ferill málsins
- Málið var á dagskrá fundar
- Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
-
2019
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd, fundur 231 liður 9
Lögð fram byggingarleyfisumsókn Argos ehf fyrir hönd áhugahóps um endurgerð gamla barnaskólans á Eskifirði , dagsett 17. apríl 2019, þar sem sótt er um leyfi til að endurbyggja gamla barnaskólahúsið að Strandgötu 65, skipta um glugga, hurðir og klæðningar, innrétta skv. uppdráttum og lýsingu til notkunar fyrir námskeið og endurmenntun og námskeiðahald. Aðalhönnuður er Argos ehf. Jákvæð umsögn Minjastofnunar Íslands liggur fyrir.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir byggingaráformin.
-
Bæjarráð, fundur 611 liður 20.9
Fundargerðin „Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 231“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.