Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirHafnarstjórn

Hafnarstjórn, fundur 221

13. maí 2019, kl. 11:30 til 13:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Marinó Stefánsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (7)

Fundinn sátu

  • Jón Björn Hákonarson, formaður
  • Eydís Ásbjörnsdóttir, varaformaður
  • Kamma Dögg Gísladóttir, aðalmaður
  • Sævar Guðjónsson, aðalmaður
  • Rúnar Már Gunnarsson, aðalmaður

Starfsmenn

  • Karl Óttar Pétursson, bæjarstjóri
  • Marinó Stefánsson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 615 liður 8

    Fundargerð hafnarstjórnar, nr. 221 frá 13.maí 2019, lögð fram til umfjöllunar.

Dagskrá

  1. 1. Starfs- og fjárhagsáætlun Hafnarstjórnar 2020

    Mál 1904137 Allur ferill málsins

    Fjármálastjóri sat þennan lið fundarins og gerði grein fyrir vinnu við fjárhagsáætlun ársins 2020.

    Hafnarstjórn felur hafnarstjóra að hefja vinnu við fjárhagsáætlun og leggja fyrir nefndina að nýju.

  2. 2. Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2020 - 2023

    Mál 1904128 Allur ferill málsins

    Lagðar fram til kynningar reglur um gerð fjárhagsáætlunar Fjarðabyggðar fyrir árin 2020-2023

  3. 3. FAM ferð Cruise Iceland í Fjarðabyggð

    Mál 1905047 Allur ferill málsins

    Lögð fram dagskrá FAM hópsins á vegum Cruise Iceland sem verður á ferð um Ísland 17. - 23. maí. Fjarðabyggð verður heimsótt miðvikudaginn 22.maí milli 14:00 og 18:00.

    Hafnarstjórn felur hafnarstjóra að taka á móti hópnum sem verður í Fjarðabyggð 22. maí 2019

  4. 4. Reglur um styrki hafnarsjóðs

    Mál 1905048 Allur ferill málsins

    Hafnarstjórn ræddi tillögur að sameiginlegum reglum um úthlutum á styrkjum Fjarðabyggðar.

    Hafnarstjórn felur hafnarstjóra að vinna grunn að reglunum í samræmi við umræður á fundinum og í samráði við formenn hafnarstjórar og menningar- og nýsköpunarnefndar.

  5. 5. Vefurinn 200 mílur hluti af mbl.is

    Mál 1905049 Allur ferill málsins

    Tekið fyrir erindi frá 200 mílum, hafnarstjóra falin afgreiðsla málsins.

  6. 6. Skýrsla um ástand Norðfjarðarár

    Mál 1903090 Allur ferill málsins

    Hafnarstjórn fór yfir þær umræður sem verið hafa um skýrslu um ástand Norðfjarðarár.

    Hafnarstjórn samþykkir að fara í samstarf við veiðifélag Norðfjarðarár um friðun svæða á vegum sveitarfélagsins fyrir veiði á göngusilung. Hafnarstjóra falið að ganga frá slíku samstarfi.

  7. 7. 740 Viðgerð á stálþili við fiskiðjuver Neskaupstað

    Mál 1808016 Allur ferill málsins

    Hafnarstjórn fór yfir framgang verkefnisins við togarabryggjuna á Norðfirði. Hafnarstjórn felur sviðstjóra framkvæmdasviðs að fara yfir verkefnið og leggja fyrir nefndina að nýju.

  8. 8. Beiðni um undanþágu frá hafnsögu fyrir Perseus feb 2019

    Mál 1902148 Allur ferill málsins

    Erindi frá Eimskip dags 20. febrúar 2019 þar sem óskað er eftir undanþágu frá hafnsöguskyldu að og frá Mjóeyrarhöfn fyrir skipstjóra á M/V Perseus. Hafnarstjórn samþykkir að veita undanþáguna.

  9. 9. Beiðni um undanþágu frá hafnsöguskyldu Frigg W

    Mál 1902105 Allur ferill málsins

    Erindi frá ThorShip dags 26. apríl 2019 þar sem óskað er eftir undanþágu frá hafnsöguskyldu að og frá Mjóeyrarhöfn fyrir skipstjóra á MV Sif W. Hafnarstjórn samþykkir að veita undanþáguna.