Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirHafnarstjórn

Hafnarstjórn, fundur 222

27. maí 2019, kl. 11:30 til 13:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Marinó Stefánsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (5)

Fundinn sátu

  • Jón Björn Hákonarson, formaður
  • Eydís Ásbjörnsdóttir, varaformaður
  • Rúnar Már Gunnarsson, aðalmaður

Starfsmenn

  • Karl Óttar Pétursson, bæjarstjóri
  • Marinó Stefánsson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 617 liður 12

    Fundargerð hafnarstjórnar, nr. 222 frá 27.maí 2019, lögð fram til umfjöllunar.

Dagskrá

  1. 1. Norðfjörður Togarabryggja þekja og lagnir 2019

    Mál 1905119 Allur ferill málsins

    Hafnarstjórn hefur farið yfir tilboðið er barst í verkefnið "Norðfjörður, Togarabryggja þekja og lagnir"

    Hafnarstjórn samþykkir að taka tilboði Nestak ehf og felur hafnarstjóra frágang málsins.

  2. 2. Norðfjörður löndunarkantur smábáta breyting

    Mál 1905120 Allur ferill málsins

    Sviðstjóri framkvæmasviðs lagði fram áætlun um frágang á löndunarbryggju á togarakanti á Norðfirði. hafnarstjórn samþykkir að semja við Guðmund Guðlaugsson um verkið og felur hafnarstjóra frágang verksins.

  3. 3. Starfs- og fjárhagsáætlun Hafnarstjórnar 2020

    Mál 1904137 Allur ferill málsins

    Hafnarstjórn fór yfir fjárfestingaráætlun ársins 2020 og þriggja ára áætlunina fyrir 2020 til 2023.

    Hafnarstjórn felur hafnarstjóra að vinna áætlunina áfram í samræmi við umræður á fundinum og leggja fyrir að nýju.

  4. 4. Aðalfundarboð - Fiskimarkaður Austurlands hf. 6.júní

    Mál 1905127 Allur ferill málsins

    Hafnarstjórn felur hafnarstjóra að sækja aðalfundinn fyrir sína hönd hjá Fiskmarkaði Austurlands hf. Jafnframt samþykkir hafnarstjórn að Karl Óttar Pétursson hafnarstjóri og Snorri Styrkársson Fjármálastjóri Fjarðabyggðar verði aðalmenn og Rúnar Már Gunnarsson verði varamaður í stjórn Fiskmarkaðar Austurlands hf.

  5. 5. Fundargerðir Hafnasambands Íslands 2019

    Mál 1901001 Allur ferill málsins

    Fundargerð fundar nr. 413 hjá hafnarsambandinu lögð fram til kynningar