Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirHafnarstjórn

Hafnarstjórn, fundur 223

11. júní 2019, kl. 11:30 til 13:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Marinó Stefánsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (7)

Fundinn sátu

  • Jón Björn Hákonarson, formaður
  • Eydís Ásbjörnsdóttir, varaformaður
  • Kamma Dögg Gísladóttir, aðalmaður
  • Sævar Guðjónsson, aðalmaður
  • Rúnar Már Gunnarsson, aðalmaður

Starfsmenn

  • Karl Óttar Pétursson, bæjarstjóri
  • Marinó Stefánsson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 620 liður 19

    Fundargerð hafnarstjórnar nr. 223 frá 11. júní 2019, lögð fram til umfjöllunar.

Dagskrá

  1. 1. Beiðni um ferðastyrk vegna sjóbjörgunarráðstefnu 15-18.júní

    Mál 1906026 Allur ferill málsins

    Hafnarstjórn samþykkir að veita 300.000 kr í styrk til að sækja ráðstefnu um sjóbjörgun í Kanada með sérstaka áherslu á björgun úr farþegaskipum. Þá er fulltrúum björgunarsveitanna gert að miðla efninu til starfsmanna Fjarðabyggðahafna að ráðstefnu lokinni. Hafnarstjóra falið að ganga frá styrkveitingu.

  2. 2. Beiðni um leyfi til efnistöku úr hafsbotni á allt að 520.00 m3 við Eyri í Reyðarfiðrði

    Mál 1812179 Allur ferill málsins

    Formaður Hafnarstjórnar fór til fundar við Orkumálastjóra til að ræða þær umsóknir varðandi efnistöku í sjó sem hafa verið í vinnslu og seinagang á úrvinnslu þeirra. Niðurstaða fundar með orkumálastjóra er að öll gögn að hálfu Fjarðabyggðar liggja fyrir og Orkustofnun mun hraða afgreiðslu af sinni hálfu

  3. 3. Seatrade Europe 11-13 september

    Mál 1906049 Allur ferill málsins

    Hafnarstjórn hefur sent hafnarstjóra síðustu ár á Seatrade Europe sem er sölusýning fyrir skemmtiferðaskip. Hafnarstjórn felur atvinnu- og þróunarstjóra Fjarðabyggðar að ganga frá samningu við Cruise Iceland um að samnýta starfsmann á sýningunni fyrir Fjarðabyggðarhafnir.