Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirHafnarstjórn

Hafnarstjórn, fundur 220

29. apríl 2019, kl. 11:30 til 12:15, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Gunnlaugur Sverrisson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (7)

Fundinn sátu

  • Jón Björn Hákonarson, formaður
  • Eydís Ásbjörnsdóttir, varaformaður
  • Kamma Dögg Gísladóttir, aðalmaður
  • Sævar Guðjónsson, aðalmaður
  • Rúnar Már Gunnarsson, aðalmaður

Starfsmenn

  • Gunnlaugur Sverrisson, embættismaður
  • Karl Óttar Pétursson, bæjarstjóri

Dagskrá

  1. 1. Ástand Norðfjarðarár

    Mál 1903090 Allur ferill málsins

    Umræða í framhaldi af íbúafundi um Norðfjarðará sem haldinn var nýlega. Hafnarstjóra falið að fara yfir niðurstöður fundarins og leggja fram aðgerðaáætlun fyrir næsta fund hafnarstjórnar.

  2. 2. Seatrade Miami 2019

    Mál 1812139 Allur ferill málsins

    Lagðir fram sem trúnaðarmál til kynningar minnispunktar frá ráðstefnunni Seatrade Global sem haldið var í Miami 9 - 11. apríl 2019.

  3. 3. Aðalfundur Cruise Icealand 2019

    Mál 1904164 Allur ferill málsins

    Aðalfundur Cruise Iceland verður haldinn föstudaginn 24.maí 2019 kl. 15:00 í Reykjavík hjá Faxaflóahöfnum. Fulltrúi frá Fjarðabyggðarhöfnum mun sækja fundinn.

  4. 4. Aðstaða skipafélaga í Fjarðabyggð

    Mál 1801145 Allur ferill málsins

    Rúnar Már Gunnarsson vék af fundi undir þessum lið.

    Lögð fram drög að samningi milli Samskipa hf. og Fjarðabyggðahafna um framtíðarfyrirkomulag aðstöðu Samskipa fyrir gámasiglingar í Fjarðabyggð. Hafnarstjórn samþykkir drög að samningi með framkomnum breytingum og felur hafnarstjóra frágangs hans og undirritun. Jafnframt felur hafnarstjórn hafnarstjóra að tryggja að samningur uppfylli öll skilyrði hafnarverndar.

  5. 5. Fundargerðir Hafnasambands Íslands 2019

    Mál 1901001 Allur ferill málsins

    Fundargerð hafnasambands nr. 412 og fjórar fundargerðir siglingaráðs nr. 10 - 13, lagðar fram til kynningar.

  6. 6. Dýpkun hafna á Norðfirði og Eskifirði

    Mál 1904153 Allur ferill málsins

    Fyrirhuguð er dýpkun á höfnunum á Norðfirði og Eskifirði. Í tengslum við verkið þarf trúlega að flytja sérhæfðan pramma austur. Hafnarstjórn er sammála um að ráðast í verkið og felur hafnarstjóra að annast útfærslu þess.