Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 604

11. mars 2019, kl. 08:30 til 11:30, í Molanum fundarherbergi 3. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (5)

Fundinn sátu

  • Eydís Ásbjörnsdóttir, formaður
  • Jón Björn Hákonarson, varaformaður
  • Rúnar Már Gunnarsson, áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Karl Óttar Pétursson, bæjarstjóri
  • Gunnar Jónsson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarstjórn, fundur 265 liður 1

    Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.

    Til máls tóku: Eydís Ásbjörnsdóttir, Einar Már Sigurðarson, Dýrunn Pála Skaftadóttir, Jón Björn Hákonarson, Rúnar Már Gunnarsson, Heimir Snær Gylfason.

    Fundargerð bæjarráðs frá 11. mars sl. staðfest með 8 atkvæðum. Einar Már tímabundið fjarverandi.

Dagskrá

  1. 1. Erindisbréf hafnarstjórnar

    Mál 1805118 Allur ferill málsins

    Framlagt endurskoðað erindisbréf hafnarstjórnar sem hefur verið uppfært með tilliti til skipulagsbreytinga sem bæjarstjórn staðfest 21. febrúar sl.

    Vísað til umsagnar hafnarstjórnar.

  2. 2. Erindisbréf eigna-,skipulags- og umhverfisnefndar

    Mál 1805115 Allur ferill málsins

    Framlagt endurskoðað erindisbréf eigna- skipulags- og umhverfisnefndar sem hefur verið uppfært með tilliti til skipulagsbreytinga sem bæjarstjórn staðfest 21. febrúar sl.

    Vísað til umsagnar eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar.

  3. 3. Ljósleiðaravæðing 2019 - umsóknir

    Mál 1811036 Allur ferill málsins

    Fjallað um stöðu ljósleiðaraverkefna í Fjarðabyggð og framkvæmd ákveðinna verkþátta á árin 2019. Um er að ræða lagningu ljósleiðara í Breiðdal, um Suðurfirði frá Stöðvarfirði í Reyðarfjörð, ljósleiðaratengingu við Mjóafjörð sem hlut af hringtengingu fjarskiptainnviða og ljósleiðarlagningu í Norðfirði.

    Bæjarráð felur sviðsstjóra framkvæmdasviðs eftirfylgni mála. Vísað til kynningar eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar.

  4. 4. C.9 Byggðaáætlun

    Mál 1903034 Allur ferill málsins

    Framkvæmdaráð SSA fundaði í síðustu viku og á dagskrá var m.a. verkefni C.9 í byggðaáætlun 2018-2024, náttúruvernd og efling byggða. Verkefnið er einnig hluti af stefnu ríkisstjórnarinnar um sérstakt átak í friðlýsingum og að skoðaðir verði möguleikar á þjóðgörðum á öðrum svæðum en nú er. SSA á að leggja fram tillögur að svæðum sem henta vel að verkefninu.

    Bæjarráð samþykkir að leggja til Gerpissvæðið sem svæði til verkefnisins en áréttar að hér sé verið að skoða möguleika á friðlýsingu. Frekari umræða mun þurfa að fara fram áður en endanleg ákvörðun um friðlýsingu verður tekin. Vísað til kynningar í eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd.

  5. 5. Umsóknir um framlög úr framkvæmdasjóði aldraðra 2019

    Mál 1902198 Allur ferill málsins

    Framlögð gögn og umsókn hjúkrunarheimilanna í Fjarðabyggð um framlög 2019 úr framkvæmdasjóð aldraðra. Með umsókn þarf að fylgja staðfesting/yfirlýsing um fjármögnun framkvæmdanna annarra en Framkvæmdasjóðs aldraðra auk yfirlýsingar um að fyrirhugaðar framkvæmdir séu í samræmi við áætlanir þess um uppbyggingu á þjónustu fyrir aldraðra.

    Bæjarráð samþykkir að sótt sé um framlög úr Framkvæmdasjóði aldraðra á árinu 2019 með vísan til minnisblað fjármálastjóra. Jafnframt samþykkir bæjarráð að fjármagnaðar verði tilgreindar framkvæmdir að fengnum styrk framkvæmdasjóðsins. Tekið upp að nýju þegar afstaða sjóðsins liggur fyrir. Vísað til kynningar framkvæmdaráðs hjúkrunarheimilanna.

  6. 6. Lífeyrisskuldbinding Skipulagsstofu Austurlands

    Mál 1709008 Allur ferill málsins

    Framlagt bréf Lífeyrissjóðs ríkisstarfsmanna til Sambands sveitarfélaga á Austurlandi varðandi lífeyrskuldbindingu vegna Skipulagsstofu Austurlands. Jafnframt tölupóstur fjármálastjóra um skiptingu ábyrgðarinnar og útreikning á tryggingafræðilegri stöðu hennar 2017. Fjarðabyggð greiðir 8/25 af ábyrgðinni.

    Bæjarráð samþykkir fyrir sitt leyti hlutdeild Fjarðabyggðar.