Umsóknir um framlög úr framkvæmdasjóði aldraðra 2019
Mál 1902198 Fyrst á dagskrá 11. mars 2019, síðast 21. mars 2019. 2 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn.
Í heiti málsins: Velferð
Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.
Ferill málsins
- Málið var á dagskrá fundar
- Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
-
2019
Bæjarráð, fundur 604 liður 5
Framlögð gögn og umsókn hjúkrunarheimilanna í Fjarðabyggð um framlög 2019 úr framkvæmdasjóð aldraðra. Með umsókn þarf að fylgja staðfesting/yfirlýsing um fjármögnun framkvæmdanna annarra en Framkvæmdasjóðs aldraðra auk yfirlýsingar um að fyrirhugaðar framkvæmdir séu í samræmi við áætlanir þess um uppbyggingu á þjónustu fyrir aldraðra.
Bæjarráð samþykkir að sótt sé um framlög úr Framkvæmdasjóði aldraðra á árinu 2019 með vísan til minnisblað fjármálastjóra. Jafnframt samþykkir bæjarráð að fjármagnaðar verði tilgreindar framkvæmdir að fengnum styrk framkvæmdasjóðsins. Tekið upp að nýju þegar afstaða sjóðsins liggur fyrir. Vísað til kynningar framkvæmdaráðs hjúkrunarheimilanna.
-
Bæjarstjórn, fundur 265 liður 1.5
Fundargerðin „Bæjarráð - 604“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.