Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirFélagsmálanefnd

Félagsmálanefnd, fundur 120

26. febrúar 2019, kl. 15:00 til 17:00, í Molanum fundarherbergi 1 og 2. Fundargerð ritaði Helga Elísabet Guðlaugsdóttir.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)

Fundinn sátu

  • Hjördís H. Seljan Þóroddsdóttir, formaður
  • Ásmundur Páll Hjaltason, varaformaður
  • Heiðar Már Antonsson, aðalmaður
  • Valdimar Másson, aðalmaður
  • Lára Elísabet Eiríksdóttir, áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Helga Elísabet Beck Guðlaugsdóttir, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 603 liður 20

    Fundargerð félagsmálanefndar, nr. 120 frá 26.febrúar 2019, lögð fram til umfjöllunar.

Dagskrá

  1. 1. 306.mál til umsagnar frumvarp til laga um breytingu á lögum um málefni aldraðra (Framkvæmdarsjóður aldraðra)

    Mál 1902001 Allur ferill málsins

    Lagt fram til kynningar í félagsmálanefnd.

  2. 2. 274.mál til umsagnar tillögu til þingsályktunar um mótun stefnu sem eflir fólk af erlendum uppruna til þátttöku í íslensku samfélagi

    Mál 1902002 Allur ferill málsins

    Lagt fram til kynningar í félagsmálanefnd.

  3. 3. Fyrirspurn um notendaráð fatlaðs fólks

    Mál 1902107 Allur ferill málsins

    Fyrirspurn Öryrkjabandalags Íslands er varðar notendaráð fatlaðs fólks. Óskað er svara innan tveggja vikna. Var vísað til félagsmálastjóra til afgreiðslu og til umfjöllunar í félagsmálanefnd. Félagsmálastjóri svarar bréfinu í samvinnu við félagsmálastjóra Fljótsdalshéraðs.

  4. 4. Garðsláttur

    Mál 1806144 Allur ferill málsins

    Lagt fram minnisblað sviðsstjóra framkvæmdasviðs er varðar fyrirkomulag snjómoksturs og garðsláttar fyrir eldri borgara og öryrkja. Bæjarráð hefur vísað málinu til félagsmálastjóra og sviðsstjóra framkvæmdasviðs, með ósk um að útbúnar verði nánari reglur og gjaldskrá. Málinu er jafnframt vísað til félagsmálanefndar til umfjöllunar.

    Félagsmálanefnd leggur til að tekjumörk í gjaldskrá fylgi tekjumörkum sem notuð eru við ákvörðun um afslátt á fasteignagjöldum. Nefndir leggur til að hægt verði að sækja um þjónustu hvenær sem er en að umsókn sé virk til 1. júní hvers árs. Nefndin vill taka út úr reglunum að meðferðarteymi fjölskyldusviðs taki umsóknir til meðferðar og afgreiðslu. Félagsmálanefnd leggur til að fram komi í reglum að hægt sé að fá nánari upplýsingar um umsókn á bæjarskrifstofu. Félagmálanefnd felur félagsmálastjóra að vinna áfram að gerð reglna með sviðsstjóra framkvæmdasviðs.

  5. 5. Vinna við stefnumótun í málefnum barna

    Mál 1902175 Allur ferill málsins

    Framlagt er bréf félags- og barnamálaráðherra um stefnumótun í málefnum barna til kynningar og meðferðar í félagmálanefnd. Félagsmálastjóri mun gefa kost á sér til þátttöku í hliðarhópum sem vinna að stefnumótun í málefnum barna.

  6. 6. 255. mál til umsagnar frumvarp til laga um rétt barna sem aðstandendur, 255. mál.

    Mál 1902177 Allur ferill málsins

    Framlagt frumvarp til laga um rétt barna sem aðstandendur til kynningar í félagsmálanefnd.

  7. 7. Málefni fatlaðra barna í Fjarðabyggð

    Mál 1901142 Allur ferill málsins

    Félagsmálastjóri upplýsir um vinnslu máls í kjölfar erindis móður fatlaðs barns til félagsmálanefndar.

  8. 8. Umsókn um að gerast stuðningsforeldri

    Mál 1902126 Allur ferill málsins

    Framlögð greinagerð vegna umsóknar aðila um að gerast stuðningsforeldrar á Stöðvarfirði. Félagsmálanefnd samþykkir umsókn með fyrirvara um að gögn liggi fyrir.