Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirFélagsmálanefnd

Félagsmálanefnd, fundur 119

29. janúar 2019, kl. 16:00 til 17:30, í Molanum fundarherbergi 1 og 2. Fundargerð ritaði Helga Elísabet Guðlaugsdóttir.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)

Fundinn sátu

  • Hjördís H. Seljan Þóroddsdóttir, formaður
  • Ásmundur Páll Hjaltason, varaformaður
  • Heiðar Már Antonsson, aðalmaður
  • Valdimar Másson, aðalmaður
  • Lára Elísabet Eiríksdóttir, áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Helga Elísabet Beck Guðlaugsdóttir, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 598 liður 16

    Fundargerð 119. fundar félagsmálanefndar frá 29.janúar 2019, lögð fram til umfjöllunar.

Dagskrá

  1. 1. Erindi um öldrunarmál

    Mál 1901033 Allur ferill málsins

    Félagsmálanefnd þakkar ábendingar varðandi öldrunarmál í Fjarðabyggð. Félagsmálanefnd tekur undir áhyggjur bréfritara varðandi framtíð þjónustu við aldraða í sveitarfélaginu. Unnið er að ráðningu verkefnastjóra búsetuþjónustu aldraðra í samræmi við áherslur félagsmálanefndar á bætta þjónustu við eldri borgara í Fjarðabyggð. Erindinu er vísað til umfjöllunar í framkvæmdaráði hjúkrunarheimila Fjarðabyggðar.

  2. 2. Málefni fatlaðra barna í Fjarðabyggð

    Mál 1901142 Allur ferill málsins

    Erindi móður fatlaðs barns í Fjarðabyggð kynnt í félagsmálanefnd. Félagsmálastjóri og fræðslustjóri munu funda með bréfritara og vinna málið áfram.

  3. 3. Umsókn um að gerast dagforeldri

    Mál 1812055 Allur ferill málsins

    Framlögð er greinargerð vegna umsóknar um að gerast dagforeldri. Félagsmálanefnd samþykkir umsókn Sæunnar Skúladóttur um að fá daggæsluleyfi fyrir allt að fjórum börnum til eins árs samkvæmt 11. grein reglugerðar nr. 907/2005.

  4. 4. Stefnumörkun í fræðslu- og frístundamálum í Fjarðabyggð

    Mál 1808078 Allur ferill málsins

    Vinna við endurskoðun fræðslu- og frístundastefnu Fjarðabyggðar er hafin. Félagsmálanefnd tilnefnir einn fulltrúa til setu í stefnumótunarhópi. Félagsmálanefnd tilnefnir Hjördísi Helgu Seljan til setu í hópnum.

  5. 5. Fjárhagsstaða Uppsala 2018

    Mál 1811186 Allur ferill málsins

    Uppsalir hafa fengið 30 m.kr. að láni frá bæjarsjóði vegna hallarekstrar. Ljóst er að heimilið þarf um 5 m.kr. til viðbótar á þessu ári. Verulegur árangur hefur náðst í lækkun rekstrarkostnaðar og hækkun tekna og eru líkur til að óbreyttu geti heimilið staðið undir reglubundnum útgjöldum á næsta ári. Framkvæmdaráð hjúkrunarheimilanna hefur samþykkt að óska eftir viðbótarfjárframlagi frá bæjarsjóði. Bæjarráð hefur samþykkt 5 milljóna framlag til Uppsala. Jafnframt vísað til kynningar í félagsmálanefnd.

    Kynnt í félagsmálanefnd.

  6. 6. Staða samningamála fyrir þjónustu hjúkrunarheimila

    Mál 1812103 Allur ferill málsins

    Lagt fram til kynningar bréf frá samninganefnd SFV og Sambandi íslenskra sveitarfélaga vegna rammasamnings við Sjúkratryggingar Íslands um þjónustu hjúkrunarheimila.

    Kynnt í félagsmálanefnd.

  7. 7. Nýtt hjúkrunarheimili í Fjarðabyggð

    Mál 1704039 Allur ferill málsins

    Farið yfir stöðuna á hjúkrunarrýmum í Fjarðabyggð. Framkvæmdaráð hjúkrunarheimilanna telur mikilvægt að tryggð verði full nýting á núverandi hjúkrunarrýmum í Fjarðabyggð, bæði á Hulduhlíð og Uppsölum. Ein forsenda þess er að heimilið að Uppsölum fái eðlilegt viðhald og öllum herbergjum verði breytt í einmennings herbergi. Mikilvægt er að gera langtímaáætlun um uppbyggingu hjúkrunarrýma í Fjarðabyggð í heild.

    Kynnt í félagsmálanefnd.

  8. 8. Hús frístunda

    Mál 1901070 Allur ferill málsins

    Framlagt minnisblað um útfærslu frístundastarfs í Egilsbúð í Neskaupstað. Bæjarráð líst vel á tillögurnar og vísar þeim til umfjöllunar í félagsmálanefnd, menningar- og nýsköpunarnefnd, safnanefnd og íþrótta- og tómstundanefnd.

    Kynnt í félagsmálanefnd.

  9. 9. Samstarf um greiðslu gistináttagjalds í neyðarathvörfum Reykjavíkurborgar fyrir heimilislausa

    Mál 1901116 Allur ferill málsins

    Bréf Reykjavíkurborgar frá 15.janúar, er varðar greiðsluþátttöku vegna gistingar í neyðarathvörfum á vegum Reykjavíkurborgar fyrir heimilislausa. Bæjarráð samþykkir samning, felur bæjarstjóra undirritun hans og að setja málið í farveg innan stjórnsýslu sveitafélagsins. Vísað til kynningar í félagsmálanefnd og barnaverndarnefnd.

    Kynnt í félagsmálanefnd.

  10. 10. Drög að leiðbeinandi reglum fyrir sveitarfélög um styrki til náms og verkfæra- og tækjakaupa fatlaðs fólks

    Mál 1901189 Allur ferill málsins

    Félagsmálastjóri greindi frá að þjónustuhópur hafi fjallað um drögin á fundi þann 23.1.2018.

    Þjónustuhópur mun gera athugasemd við 2. gr. reglnanna þar sem segir: Aðstæður í sveitarfélagi með tilliti til námsúrræða geta einnig haft áhrif á mótun reglna, til dæmis er eðlilegt að sveitarfélag þar sem framhaldsskóli er starfræktur taki afstöðu til þess hvort fatlaðir nemendur, yngri en 18 ára, geti átt kost á styrk til kaupa á fartölvu sem gagnast við námið.

    Þjónustuhópur mun benda á að allir fatlaðir nemendur ættu að hafa sama rétt á styrk óháð því hvort framhaldsskóli sé starfræktur í því sveitarfélagi sem þeir búa í.

  11. 11. Drög að leiðbeinandi reglum fyrir sveitarfélög um þjónustu stuðningsfjölskyldna

    Mál 1901190 Allur ferill málsins

    Framlögð eru drög félagsmálaráðuneytis að leiðbeinandi reglum fyrir sveitarfélög um þjónustu stuðningsfjölskyldna. Félagsmálanefnd gerir ekki athugsemd við drögin.