Drög að leiðbeinandi reglum fyrir sveitarfélög um styrki til náms og verkfæra- og tækjakaupa fatlaðs fólks
Mál 1901189 Fyrst á dagskrá 29. janúar 2019, síðast 4. febrúar 2019. 2 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Félagsmálanefnd.
Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.
Ferill málsins
- Málið var á dagskrá fundar
- Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
-
2019
Félagsmálanefnd, fundur 119 liður 10
Félagsmálastjóri greindi frá að þjónustuhópur hafi fjallað um drögin á fundi þann 23.1.2018.
Þjónustuhópur mun gera athugasemd við 2. gr. reglnanna þar sem segir: Aðstæður í sveitarfélagi með tilliti til námsúrræða geta einnig haft áhrif á mótun reglna, til dæmis er eðlilegt að sveitarfélag þar sem framhaldsskóli er starfræktur taki afstöðu til þess hvort fatlaðir nemendur, yngri en 18 ára, geti átt kost á styrk til kaupa á fartölvu sem gagnast við námið.
Þjónustuhópur mun benda á að allir fatlaðir nemendur ættu að hafa sama rétt á styrk óháð því hvort framhaldsskóli sé starfræktur í því sveitarfélagi sem þeir búa í.
-
Bæjarráð, fundur 598 liður 16.10
Fundargerðin „Félagsmálanefnd - 119“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.