Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirSafnanefnd

Safnanefnd, fundur 6

17. desember 2018, kl. 16:00 til 18:00, í Molanum fundarherbergi 1. Fundargerð ritaði Pétur Sörensson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (9)

Fundinn sátu

  • Jón Björn Hákonarson, formaður
  • Kamma Dögg Gísladóttir, varaformaður
  • Ævar Ármannsson, aðalmaður
  • Sævar Guðjónsson, aðalmaður

Starfsmenn

  • Pétur Þór Sörensson, embættismaður
  • Gunnar Jónsson, embættismaður
  • Gunnlaugur Sverrisson, embættismaður
  • Andrea Borgþórsdóttir, embættismaður
  • Karl Óttar Pétursson, bæjarstjóri

Þessi fundargerð á öðrum fundum

Dagskrá

  1. 1. Vettvangsheimsókn í safnið Frakkar á Íslandsmiðum, 2018.

    Mál 1812129 Allur ferill málsins

    Farið var í vettvangsheimsókn á safnið Frakkar á Íslandsmiðum ásamt því að kapellan var skoðuð.

    Forstöðumanni Safnastofnunar og Karli Óttari Péturssyni, bæjarstjóra falið að ræða við forsvarsmenn Fosshótela varðandi aðgengi sveitarfélagsins að safninu Frakkar á Íslandsmiðum á lokunartíma hótelsins. Forstöðumanni Safnastofnunar var falið að láta yfirfara sýningarbúnað safnsins og endurnýja það sem þarf fyrir sumaropnun þess árið 2019.

  2. 2. Fyrirhuguð uppbygging Íslenska stríðsárasafnsins.

    Mál 1812130 Allur ferill málsins

    Farið var yfir málefni safnsins.

    Forstöðumanni Safnastofnunar falið að vinna málið með skipulags- og byggingarfulltrúa Fjarðabyggðar. Mikilvægt er að lóð og umhverfi safnsins verði skipulagt og hannað sem safnasvæði þar sem tekið er tillit til frekari uppbyggingu safnsins, aðkomu gesta, bílastæða fyrir rútur og einkabíla auk tengingar við göngu- og útivistarsvæðis í nágrenni safnsins. Gera þarf áætlun um frekari framvindu verkefnisins ásamt áætluðum kostnaði.

  3. 3. Málefni Safnanefndar Neskaupstaðar.

    Mál 1812131 Allur ferill málsins

    Farið var yfir málefni Safnanefndar Neskaupstaðar.

    Forstöðumanni Safnastofnunar og Jóni Birni Hákonarsyni, formanni Safnanefndar falið að funda með Safnaráði Neskaupstaðar í byrjun árs 2019.

  4. 4. Málefni Skjala- og myndasafns Neskaupstaðar.

    Mál 1812132 Allur ferill málsins

    Farið var yfir málefni Skjala- myndasafns Neskaupstaðar.

    Óskað er eftir að framkvæmdasvið Fjarðabyggðar taki út ástand fasteignarinnar Egilsbraut 4, Neskaupstað.

    Meta þarf hvort húsnæðið henti sem aðstaða fyrir skjalageymslur sveitarfélagsins

  5. 5. Stefnumótun Safnanefndar.

    Mál 1812134 Allur ferill málsins

    Stefnumótun Safnanefndar rædd.

    Forstöðumanni Safnastofnunar og Jóni Birni Hákonarsyni, formanni Safnanefndar falið að byrja á að setja upp ramma fyrir stefnumótun nefndarinnar. Stefnumótunin tekur mið af heimsóknum nefndarinnar í söfn sveitarfélagsins og annri umræðu um safnamál sem farið hefur fram. Gert er ráð fyrir að vinna við stefnumótunina hefjist í byrjun árs 2019 og verði lögð fyrir nefndina til umræðu

  6. 6. Málefni Héraðsskjalasafns.

    Mál 1812135 Allur ferill málsins

    Farið var yfir málefni Héraðsskjalasafns Austfirðinga.

  7. 7. Vettvangsheimsókn í Templarann, Fáskrúðsfirði.

    Mál 1812133 Allur ferill málsins

    Vettvangsheimsókn í Templarann, Fáskrúðsfirði.

    Farið var í vettvangsheimsókn í Templarann, Hamarsgötu 8 á Fáskrúðsfirði. Nefndarmenn kynntu sér húsakynnin og ræddu málefni þess.