Safnanefnd, fundur 10
18. júní 2019, kl. 16:00 til 17:30, í Molanum. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (4)
Fundinn sátu
- Jón Björn Hákonarson, formaður
- Kamma Dögg Gísladóttir, varaformaður
- Sævar Guðjónsson, aðalmaður
Starfsmenn
- Gunnar Jónsson, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Menningar- og nýsköpunarnefnd, fundur 15 liður 9
Fundargerð safnanefndar samþykkt samhljóða.
Bæjarráð, fundur 622 liður 15
Fundargerð safnanefndar frá 18.júní, lögð fram til samþykktar í umboði bæjarstjórnar.
Bæjarráð staðfestir fundargerð safnanefndar í umboði bæjarstjórnar.
Dagskrá
-
1. Starfs- og fjárhagsáætlun menningar- og nýsköpunarnefndar 2020
Mál 1904132 Allur ferill málsins
Undirbúningur fjárhagsáætlunargerðar 2020. Farið yfir drög verkefna í starfsáætlunar 2020. Kaflar starfsáætlunar, breytingar á forsendum og umhverfi og verkefnum teknir til umræðu.
Safnanefnd fór yfir verkefni og framkvæmdir en eftir er að móta verkefni nánar og áætla kostnað ákveðinna liða. Auk þess þarf að áætla tíma sem starfsmenn Fjarðabyggðar verja til tilgreindra verkefna. Safnanefnd felur forstöðumanni safnastofnunar að yfirfara verkefnalista og leggja að nýju fyrir nefndina. Málinu vísað til fjárhagsáætlunargerðar 2020.
-
2. Málefni bókasafna
Mál 1906082 Allur ferill málsins
Rætt um starfsemi bókasafna í Fjarðabyggð.
Safnanefnd samþykkir að horft verði til þess í fjárhagsáætlunargerð 2020 að afnot íbúa i Fjarðabyggð að bókasöfnum verði almennt gjaldfrjáls með framvísun Fjarðabyggðakorts. Forstöðumanni safnastofnunar falið að fjalla um tillöguna á fundi með forstöðumönnum bókasafna. Vísað til fjárhagsáæltunargerðar 2020.