Beint í efni
Hnotskurninn

Mál2021

Gjafasjóðir Hildar Eiríksdóttur og Jón Einars Einarssonar

Mál 1812112 Fyrst á dagskrá 24. júní 2019, síðast 24. júní 2021. 3 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn.

Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.

Ferill málsins

  • Málið var á dagskrá fundar
  • Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
Leið málsins í tímaröð, frá vinstri til hægri. Hver lína er ein nefnd eða ráð. Feita línan tengir fundina þar sem málið sjálft var á dagskrá. Guli reiturinn er síðasta færslan. Ýttu á punkt til að sjá færsluna.
  1. 2019

    Bæjarráð, fundur 621 liður 2

    Greinargerð fjármálastjóra lögð fram um tvo gjafasjóði sem voru í vörslu Breiðdalshrepps og ráðstöfun þeirra.

    Bæjarráð samþykkir að gjafasjóðirnir verði nýttir í þágu dagvistar aldraðra í Breiðdal en þeir voru gefnir með því fororði að þeir nýttust til þjónustu við aldraða í Breiðdal. Gjafasjóður Hildar Eiríksdóttur verði nýttur til endurnýjunar á bifreið sem þjónustar dagvistina í Breiðdal. Gjafasjóður Jóns E. Einarssonar verði nýttur til uppbyggingar nýrrar dagvistar fyrir aldraða í Breiðdal.

    Bæjarráð vísar tillögu sinni til staðfestingar bæjarstjórnar.

  2. 2021

    Bæjarráð, fundur 715 liður 3

    Lögð fram staðfesting á ráðstöfun Fjarðabyggðar úr gjafasjóði Jóns Einars Einarssonar til uppbyggingar á þjónustu við aldraða í Breiðdal. Bæjarráð samþykkir ráðstöfun úr gjafasjóði samkvæmt tillögu í minnisblaði.

  3. Bæjarstjórn, fundur 315 liður 3.3

    Fundargerðin „Bæjarráð - 715“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is