Bæjarráð, fundur 715
21. júní 2021, kl. 09:30 til 11:40, í Molanum fundarherbergi 3. Fundargerð ritaði Gunnlaugur Sverrisson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (7)
Fundinn sátu
- Sigurður Ólafsson, formaður
- Pálína Margeirsdóttir, varaformaður
- Ragnar Sigurðsson, aðalmaður
- Rúnar Már Gunnarsson, áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Jón Björn Hákonarson, bæjarstjóri
- Gunnlaugur Sverrisson, embættismaður
- Snorri Styrkársson, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarstjórn, fundur 315 liður 3
Fundargerðir bæjarráðs teknar til afgreiðslu saman.
Til máls tók Sigurður Ólafsson.
Fundargerð bæjarráðs frá 21.júní, staðfest með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Starfs- og fjárhagsáætlun menningar- og nýsköpunarnefndar 2022
Mál 2104130 Allur ferill málsins
Vísað frá menningar- og nýsköpunarnefnd tillögum nefndarinnar að rammaúthlutun vegna ársins 2022 til bæjarráðs. Bæjarráð vísar minnisblaði til fjárhagsáætlunargerðar 2022.
-
2. Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2022-2025
Mál 2104074 Allur ferill málsins
Lögð fram að nýju samantekt á tillögum nefnda og sviðsstjóra um breytingar á römmum vegna fjárhagsáætlunar ársins 2022. Bæjarráð samþykkir framlagða tillögu um breytingar á römmum vegna fjárhagsáætlunar 2022 og felur fjármálastjóra nánari útfærslu þeirra. Bæjarráð mun jafnframt yfirfara fjárhagsramma að nýju fyrir komandi fjárhagsáætlunarvinnu haustsins.
-
3. Gjafasjóðir Hildar Eiríksdóttur og Jón Einars Einarssonar
Mál 1812112 Allur ferill málsins
Lögð fram staðfesting á ráðstöfun Fjarðabyggðar úr gjafasjóði Jóns Einars Einarssonar til uppbyggingar á þjónustu við aldraða í Breiðdal. Bæjarráð samþykkir ráðstöfun úr gjafasjóði samkvæmt tillögu í minnisblaði.
-
4. Úttekt húsnæðis- og mannvirkjastofnunar á Slökkviliði Fjarðabyggðar
Mál 2106118 Allur ferill málsins
Lögð fram úttekt Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar á starfsemi slökkviliðs Fjarðabyggðar. Bæjarráð vísar úttektinni til slökkviliðsstjóra með beiðni um að aðgerðaáætlun verði lögð fyrir bæjarráð á komandi hausti.
-
5. Skýrsla Eflu vegna myglutjóns í Breiðablik
Mál 2105105 Allur ferill málsins
Lögð fram til kynningar skýrsla EFLU vegna myglutjóns í Breiðablik.
Skýrslu er vísað til umfjöllunar í eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd en unnið er að kostnaðargreiningu og forgangsröðun framkvæmdanna af hálfu framkvæmdasviðs.
-
6. Fundargerðir Samband Íslenskra sveitarfélaga 2021
Mál 2102016 Allur ferill málsins
Fundargerð stjórnar Sambandsins íslenskra sveitarfélaga nr. 899 lögð fram til kynningar.
-
7. Menningar- og nýsköpunarnefnd - 39
Fundargerð menningar- og nýsköpunarnefndar frá 14. júní lögð fram til afgreiðslu.
- 7.1 Starfs- og fjárhagsáætlun menningar- og nýsköpunarnefndar 20222104130
- 7.2 Endurnýjun búnaðar bókasafna2105118
-
8. Íþrótta- og tómstundanefnd - 90
Fundargerð íþrótta- og tómstundanefndar frá 14. júní lögð fram til afgreiðslu.