Bæjarráð, fundur 714
14. júní 2021, kl. 08:30 til 11:35, í Molanum fundarherbergi 3. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)
Fundinn sátu
- Sigurður Ólafsson, formaður
- Pálína Margeirsdóttir, varaformaður
- Ragnar Sigurðsson, aðalmaður
- Rúnar Már Gunnarsson, áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Jón Björn Hákonarson, bæjarstjóri
- Gunnar Jónsson, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarstjórn, fundur 315 liður 2
Fundargerðir bæjarráðs teknar til afgreiðslu saman.
Til máls tóku Sigurður Ólafsson og Pálína Margeirsdóttir.
Fundargerð bæjarráðs frá 14.júní, utan liðar 24, staðfest með 9 atkvæðum.
Kristinn Þór Jónasson vék af fundi undir lið 24.
Fundarliður 24 staðfestur með 8 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Rekstur málaflokka 2021 - TRÚNAÐARMÁL
Mál 2104079 Allur ferill málsins
Framlagt sem trúnaðarmál yfirlit um rekstur málaflokka og framkvæmdir fyrir janúar - apríl 2021, skatttekjur og launakostnað fyrir janúar - maí 2021.
-
2. Starfs- og fjárhagsáætlun félagsmálanefndar 2021
Mál 2005022 Allur ferill málsins
Vísað frá félagsmálanefnd til umfjöllunar bæjarráðs minnisblaði og greinargerð um rekstur og fjárhagsáætlun ársins 2021 í málaflokknum.
Fjallað um aðgerðir til að mæta kostnaði málaflokksins.
-
3. Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2022-2025
Mál 2104074 Allur ferill málsins
Lögð fram samantekt fjármálastjóra á tillögum nefnda og sviðstjóra um breytingu á römmum vegna fjárhagsáætlunar ársins 2022.
Vísað til áframhaldandi vinnu við fjárhagsáætlunargerð 2022.
-
4. Starfs- og fjárhagsáætlun bæjarráðs 2022
Mál 2104135 Allur ferill málsins
Lögð fram minnisblöð bæjarritara, fjármálastjóra, mannauðsstjóra, upplýsingafulltrúa og sökkviliðsstjóra varðandi áherslur og breytingar á fjárhagsáætlun ársins 2022.
Vísað til áframhaldandi vinnu við fjárhagsáætlunargerð 2022.
-
5. Starfs- og fjárhagsáætlun ESU nefndar 2022
Mál 2104129 Allur ferill málsins
Vísað frá eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd til umfjöllunar bæjarráðs minnisblöðum og áætlunum sviðsstjóra umhverfis- og skipulagssviðs og sviðsstjóra framkvæmdasviðs, vegna úthlutunar fjárhagsramma nefndarinnar vegna fjárhagsáætlunar 2022.
Vísað til áframhaldandi vinnu við fjárhagsáætlunargerð 2022.
-
6. Starfs- og fjárhagsáætlun hafnarstjórnar 2022
Mál 2104136 Allur ferill málsins
Vísað frá hafnarstjórn til umfjöllunar bæjarráðs minnisblöðum og áætlun hafnarsjóðs vegna úthlutunar fjárhagsramma nefndarinnar vegna fjárhagsáætlunar 2022.
Vísað til áframhaldandi vinnu við fjárhagsáætlunargerð 2022.
-
7. Starfs- og fjárhagsáætlun fræðslunefndar 2022
Mál 2104131 Allur ferill málsins
Vísað frá fræðslunefnd til umfjöllunar bæjarráðs minnisblaði vegna úthlutunar fjárhagsramma nefndarinnar vegna fjárhagsáætlunar 2022.
Vísað til áframhaldandi vinnu við fjárhagsáætlunargerð 2022.
-
8. Starfs- og fjárhagsáætlun íþrótta- og tómstundanefndar 2022
Mál 2104134 Allur ferill málsins
Vísað frá íþrótta- og tómstundanefnd til umfjöllunar bæjarráðs, minnisblaði vegna úthlutunar fjárhagsramma nefndarinnar vegna fjárhagsáætlunar 2022.
Vísað til áframhaldandi vinnu við fjárhagsáætlunargerð 2022.
-
9. Starfs- og fjárhagsáætlun félagsmálanefndar 2022
Mál 2104133 Allur ferill málsins
Vísað frá félagsmálanefnd til umfjöllunar bæjarráðs minnisblaði vegna úthlutunar fjárhagsramma nefndarinnar vegna fjárhagsáætlunar 2022.
Vísað til áframhaldandi vinnu við fjárhagsáætlunargerð 2022.
-
10. Starfs- og fjárhagsáætlun barnaverndarnefndar 2022
Mál 2104132 Allur ferill málsins
Vísað frá barnaverndarnefnd til umfjöllunar bæjarráðs minnisblaði vegna úthlutunar fjárhagsramma nefndarinnar vegna fjárhagsáætlunar 2022.
Vísað til áframhaldandi vinnu við fjárhagsáætlunargerð 2022.
-
11. Starfs- og fjárhagsáætlun menningar- og nýsköpunarnefndar 2022
Mál 2104130 Allur ferill málsins
Lagt til umfjöllunar bæjarráðs minnisblaði vegna úthlutunar fjárhagsramma nefndarinnar vegna fjárhagsáætlunar 2022.
Minnisblað verður lagt fyrir fund menningar- og nýsköpunarnefnd síðar í dag.
Vísað til áframhaldandi vinnu við fjárhagsáætlunargerð 2022.
-
12. Almenningssamgöngur í Fjarðabyggð
Mál 1904072 Allur ferill málsins
Lögð fram tillaga fyrir fjárhagsáætlun 2022 vegna almenningssamgangna í formi minnisblaðs upplýsingafulltrúa ásamt skýrslu Verkfræðistofunnar Eflu um almenningssamgöngur í Fjarðabyggð. Skýrslan hefur verið tekin fyrir í þeim fastanefndum sveitarfélagsins sem aðkomu hafa að málinu.
Vísað til fjárhagsáætlunargerðar 2022 og útfært í samræmi við fjárveitingar þar.
-
13. Viðtalstímar bæjarstjóra 2021
Mál 2106091 Allur ferill málsins
Lagt fram minnisblað upplýsingafulltrúa um viðtalstíma bæjarstjóra sem fram fóru 25. maí - 8. júní 2021.
-
14. 17. júní 2021
Mál 2106090 Allur ferill málsins
Lagt fram minnisblað upplýsingafulltrúa vegna hátíðahalda 17. júní 2021. Að þessu sinni mun ungmennafélagið Austri á Eskifirði sjá um hátíðahöldin.
Bæjarráð samþykkir tillögur í minnisblaði.
-
15. Rekstur hjúkrunarheimila 2021
Mál 2102144 Allur ferill málsins
Lagt fram yfirlit yfir fjárhagsstöðu og rekstur hjúkrunarheimila á árinu 2021 og mögulegt uppgjör við HSA, Heilbrigðisráðuneyti og Sjúkratryggingar Íslands.
Vísað frekari vinnslu fjármálastjóra og gerðar viðauka þegar niðurstöður uppgjörs liggja fyrir. Jafnframt er fjármálstjóra heimilt að leggja hjúkrunarheimilinum til fjármagn til uppgjörs.
-
16. Upplýsingaöryggisstefna
Mál 1805200 Allur ferill málsins
Framlögð til afgreiðslu yfirfarin og uppfærð upplýsingaöryggisstefna. Upplýsingaöryggisstefna var staðfest 16. júlí 2018 en síðan þá hafa orðið smávægilegar breytingar s.s. staðlar og lagabreytingar. Þá voru einnig gerðar smávægilegar breytingar á orðalagi.
Vísað til staðfestingar bæjarstjórnar.
-
17. Útvistunarstefna upplýsingatæknimála
Mál 1805201 Allur ferill málsins
Framlögð til afgreiðslu uppfærð útvistunarstefna upplýsingatæknimála. Útvistunarstefnan var samþykkt 16. júlí 2018 en síðan þá hafa orðið smávægilegar breytingar s.s. tilkoma nýrra staðla.
Vísað til staðfestingar bæjarstjórnar.
-
18. Persónuverndarstefna
Mál 1805202 Allur ferill málsins
Framlögð til afgreiðslu yfirfarin persónuverndarstefna Fjarðabyggðar. Persónuverndarstefnan var staðfest 16. júlí 2018 en síðan þá hafa orðið smávægilegar breytingar s.s. lagabreytingar.
Vísað til staðfestingar bæjarstjórnar.
-
19. Endurnýjun samnings um Rentaprent
Mál 2106060 Allur ferill málsins
Lagður fram til kynningar og staðfestingar samningur um prentþjónustu í stofnunum Fjarðabyggðar auk minnisblaðs bæjarritara.
Bæjarráð samþykkir samninginn og felur bæjarstjóra undirritun hans.
-
20. Ályktun stjórnar Félags atvinnurekenda vegna fasteignamats 2022
Mál 2106040 Allur ferill málsins
Lögð fram til upplýsinga ályktun stjórnar Félags atvinnurekenda þar sem skorað er á sveitarfélög að lækka álagningarprósentu fasteignaskatts á atvinnuhúsnæði við gerð fjárhagsáætlana fyrir næsta ár, til að bregðast við miklum hækkunum fasteignamats fyrir árið 2022.
-
21. Egilsbúð
Mál 2106051 Allur ferill málsins
Lögð fram tvö erindi Leikfélags Neskaupstaðar og nemenda 9. bekkjar Nesskóla, er varða aðstöðu í félagsheimilinu Egilsbúð. Erindi barst jafnframt í viðtalstíma bæjarstjóra.
Vísað til framkvæmdasviðs til skoðunar.
-
22. Norðfjarðarvöllur
Mál 2106052 Allur ferill málsins
Framlagt erindi 9. bekkjar Nesskóla þar sem óskað er eftir að lagt verði nýtt gervigras á Norðfjarðarvöll og girðingar við völlinn verði hækkaðar.
Að svo stöddu er forgangur sveitarfélagsins í viðhald íþróttamannvirkja á Fjarðabyggðarhöllina en erindið verður tekið til skoðunar til framtíðar litið.
-
23. Bréf til Bæjarráðs frá stjórn foreldrafélags Nesskóla
Mál 2106076 Allur ferill málsins
Framlagt bréf foreldrafélags Nesskóla er varðar framkvæmdir við lóð skólans.
Bæjarráð vísar erindi til vinnu við fjárhagsáætlun ársins 2022 en unnið er að hönnun lóðar á þessu ári.
-
24. Bréf til bæjarráðs frá Vinum Valhallar
Mál 2106069 Allur ferill málsins
Framlagt erindi frá Vinum Valhallar um frekari stuðning við núverandi hlutverk félagsheimilisins Valhallar á Eskifirði.
Vísað til bæjarstjóra til skoðunar. Tekið fyrir að nýju í bæjarráði.
-
25. Húsaleigusamningur um Sæberg 1 Breiðdalsvík
Mál 2105008 Allur ferill málsins
Leigusamningur um Sæberg 1 í Breiðdal milli Háskóla Íslands og Fjarðabyggðar lagður fram til afgreiðslu ásamt samstarfssamningi um starfsemi rannsóknaseturs háskólans.
Bæjarráð samþykkir leigusamning og samstarfssamning og felur bæjarstjóra undirritun þeirra.
-
26. 735 Lambeyrarbraut - Umsókn um lóð
Mál 2011049 Allur ferill málsins
Vísað frá eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd til afgreiðslu bæjarráðs, lóðarumsókn Maríu Bjarkar Ríkharðsdóttur um lóðina við Lambeyrarbraut 1a á Eskifirði undir einbýlishús.
Bæjarráð samþykkir að úthluta lóðinni.
-
27. Aðalfundarboð 2021 - Olíusamlagið
Mál 2106094 Allur ferill málsins
Framlagt fundarboð aðalfundar Olíussamlags útvegsmanna í Neskaupstað þann 18. júní 2021.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að fara með umboð Fjarðabyggðar á aðalfundinum.
-
28. Nýtt skipulag almannavarna í maí 2021
Mál 2105157 Allur ferill málsins
Tekið fyrir að nýju bréf Lögreglustjórans á Austurlandi er varðar nýtt skipulag almannavarna. Óskað er eftir tilnefningum á aðal- og varamanni í vinnuhóp Fjarðabyggðar fyrir 15. júní nk.
Bæjarráð samþykkir að slökkviliðsstjóri verði sem aðalmaður í vinnuhópnum og til vara sviðsstjóri framkvæmdasviðs.
-
29. Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 290
Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar frá 7.júní lögð fram til afgreiðslu.
- 29.1 Starfs- og fjárhagsáætlun ESU nefndar 20222104129
- 29.2 730 Mánagata 12 - Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi2105170
- 29.3 740 Starmýri 21-23 - Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi2105099
- 29.4 740 Þiljuvellir 12 - Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi2106007
- 29.5 740 Hlíðargata 33 - Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi2106008
- 29.6 740 Nesgata 25 - Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi2106006
- 29.7 740 Breiðablik 4 - Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi2105178
- 29.8 760 Sólbakki 9 - Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi2106031
- 29.9 735 Lambeyrarbraut - Umsókn um lóð2011049
- 29.10 750 - Hafnargata 32 - Umsókn um byggingarleyfi, viðbygging2106018
- 29.11 740 Framkvæmdaleyfi - Lagfæring frá Viðfirði út að Barðsnesi2005141
- 29.12 760 Framkvæmdaleyfi, lagning þriggjafasa rafmagnsstrengs í Breiðdal2106015
- 29.13 760 - Efnistaka við Breiðdalsá - Framkvæmdaleyfi2106019
- 29.14 Breyting á jarðalögum 2021 - umburðarbréf ráðuneytis2106001
-
30. Hafnarstjórn - 264
Fundargerð hafnarstjórnar frá 8.júní lögð fram til afgreiðslu.
- 30.1 Starfs- og fjárhagsáætlun hafnarstjórnar 20222104136
- 30.2 Umsókn um styrk vegna Støð í Stöð 20212105185
- 30.3 Landtengingarkrani í Neskaupstað2106036
- 30.4 Umsókn um undanþágu frá hafnsöguskyldu - Samskip Skaftafell2106048
- 30.5 Stækkun löndunarhúss Eskju2106055
- 30.6 Fundargerðir Hafnasambands Íslands 20212101212
-
31. Íþrótta- og tómstundanefnd - 89
Fundargerð íþrótta- og tómstundanefndar frá 6. júní lögð fram til afgreiðslu.
- 31.1 Starfsáætlanir 2022
- 31.2 Aðgerðaáætlun um forvarnir meðal barna og ungmenna gegn kynferðislegu og kynbundnu ofbeldi og áreitni
- 31.3 Samtal við íþróttafélög Fjarðabyggðar 2021
- 31.4 Stefánslaug lengri opnunartímar
-
32. Fræðslunefnd - 99
Fundargerð fræðslunefndar frá 9. júní lögð fram til afgreiðslu.
- 32.1 Heimsókn í skóla Fjarðabyggðar2005171
- 32.2 Yfirfærsla á starfsemi Skólaskrifstofu Austurlands2104156
- 32.3 Aðgerðaáætlun um forvarnir meðal barna og ungmenna gegn kynferðislegu og kynbundnu ofbeldi og áreitni2106035
- 32.4 Ársskýrsla fjölskyldusviðs 20202103215
- 32.5 Starfs- og fjárhagsáætlun fræðslunefndar 20222104131
-
33. Félagsmálanefnd - 145
Fundargerð félagsmálanefndar frá 8. júní lögð fram til afgreiðslu.
-
34. Barnaverndarnefnd 2021
Mál 2101080 Allur ferill málsins
Framlögð fundargerð barnaverndarnefndar nr. 131 frá 10. júní sl. til afgreiðslu.