Yfirfærsla á starfsemi Skólaskrifstofu Austurlands
Mál 2104156 Fyrst á dagskrá 9. júní 2021, síðast 2. september 2021. 6 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn, Fræðslunefnd.
Í heiti málsins: Skólar og fræðsla
Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.
Ferill málsins
- Málið var á dagskrá fundar
- Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
-
2021
Fræðslunefnd, fundur 99 liður 2
Fræðslustjóri greindi frá gangi mála í yfirfærslu á starfsemi Skólaskrifstofu Austurlands yfir til fjölskyldusviðs Fjarðabyggðar. Báðir sálfræðingar og annar kennsluráðgjafi Skólaskrifstofu Austurlands sem og ritari skrifstofunnar munu hefja störf á fjölskyldusviði Fjarðabyggðar nú í haust. Ekki hefur enn verið ráðið í 25% starf talmeinafræðings, en unnið að úrlausn. Fræðslunefnd lýsir ánægju sinni með að Fjarðabyggð skuli áfram njóta þessara góðu starfskrafta og vonar að farsællega leysist með starf talmeinafræðings.
-
Bæjarráð, fundur 714 liður 32.2
Fundargerðin „Fræðslunefnd - 99“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.
-
Bæjarstjórn, fundur 315 liður 7.2
Fundargerðin „Fræðslunefnd - 99“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.
-
Fræðslunefnd, fundur 100 liður 1
Fræðslustjóri greindi fræðslunefnd frá yfirfærslu á starfsemi A-hluta Skólaskrifstofu Austurlands til fjölskyldusviðs Fjarðabyggðar. Mikil ánægja er á fjölskyldusviði með liðstyrkinn og starfsfólk spennt að takast á við þau verkefni sem bíða. Fræðslunefnd óskar starfsfólki fjölskyldusviðs velfarnaðar í þeirra mikilvægu störfum.
-
Bæjarráð, fundur 723 liður 10.1
Fundargerðin „Fræðslunefnd - 100“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.
-
Bæjarstjórn, fundur 317 liður 5.1
Fundargerðin „Fræðslunefnd - 100“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.