Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 723

30. ágúst 2021, kl. 08:30 til 11:15, í Molanum fundarherbergi 3. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)

Fundinn sátu

  • Sigurður Ólafsson, formaður
  • Pálína Margeirsdóttir, varaformaður
  • Ragnar Sigurðsson, aðalmaður
  • Rúnar Már Gunnarsson, áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Jón Björn Hákonarson, bæjarstjóri
  • Gunnar Jónsson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarstjórn, fundur 317 liður 2

    Fundargerðir bæjarráðs teknar til afgreiðslu saman.

    Til máls tóku Pálína Margeirsdóttir og Jón Björn Hákonarson.

    Fundargerð bæjarráðs frá 30.ágúst samþykkt með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2022-2025

    Mál 2104074 Allur ferill málsins

    Lögð fram drög að rammaúthlutun vegna fjárhagsáætlunar 2022 auk forsenda tekju- og gjaldaliða. Einnig lögð fram spá um efnahagsþróun næstu ára. Umræður um fyrstu drög að rammaúthlutun 2022. Vísað til áframhaldandi vinnu við fjárhagsáætlunargerð 2022 og tekið fyrir á næsta fundi bæjarráðs.

  2. 2. Almenningssamgöngur í Fjarðabyggð - Verðkönnun 2021

    Mál 2107034 Allur ferill málsins

    Lagt fram minnisblað upplýsingafulltrúa um stöðu mála varðandi nýtt leiðanet almenningssamganga í Fjarðabyggð sem hefur göngu sína miðvikudaginn 1. september. Farið yfir skipulag og þjónustu í rekstri kerfisins.

  3. 3. Friðlýsing Gerpissvæðisins - Barðsnes

    Mál 2001205 Allur ferill málsins

    Vísað frá eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd til afgreiðslu bæjarráðs, uppfærðum friðlýsingarskilmálum Barðsnessvæðisins samkvæmt umsögnum sem bárust á auglýsingartíma auk draga að greinargerð þar sem gerð er grein fyrir innkomnum athugasemdum og svörum við þeim.

    Bæjarráð samþykkir friðlýsingarskilmálana og vísar friðlýsingu svæðisins til afgreiðslu bæjarstjórnar.

  4. 4. Alþingiskosningar 2021

    Mál 2012054 Allur ferill málsins

    Framlögð fundargerð yfirkjörstjórnar Fjarðabyggðar með tillögu um kjörstaði í Fjarðabyggð vegna Alþingiskosninga 25. september nk. og opnunartíma kjörstaðanna.

    Yfirkjörstjórn leggur til að kjördeildir verði sjö. Kjördeild í Mjóafirði verður í Sólbrekku, Norðfirði í Nesskóla, Eskifirði í Tónlistarmiðstöð, Reyðarfirði í Safnaðarheimili, Fáskrúðsfirði í Grunnskóla Fáskrúðsfjarðar, Stöðvarfirði í Stöðvarfjarðarskóla og Breiðdal í Breiðdalsskóla. Kjörstaðir verði opnir milli 09:00 og 22:00 nema í Mjóafirði þar sem opið verði milli 09:00 til 14:00 eða 17:00.

    Bæjarráð samþykkir tillögu yfirkjörstjórnar um kjördeildir í Fjarðabyggð vegna Alþingiskosninga 25. september nk. og opnunartíma þeirra.

  5. 5. Innviðagreining Fjarðabyggð 2019

    Mál 1904053 Allur ferill málsins

    Atvinnu- og þróunarstjóri kynnti innviðagreining Fjarðabyggðar en hún verður kynnt á miðlum sveitarfélagsins í framhaldinu.

  6. 6. Alcoa Foundation, umhverfisverkefni 2021

    Mál 2104047 Allur ferill málsins

    Lagðar fram upplýsingar um styrk úr Alcoa Foundation vegna umhverfisverkefna. Styrkveiting nemur 130.000 bandaríkjadölum eða 80% og mótframlag sveitarfélagsins er 20%. Bæjarráð fagnar styrknum og felur bæjarstjóra að undirrita samning um verkefnið. Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd falin umsjón og útfærsla verkefnisins.

  7. 7. 730 Búðarmelur 27 - Umsókn um lóð

    Mál 2108068 Allur ferill málsins

    Vísað frá eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd til afgreiðslu bæjarráðs lóðarumsókn AMC wave ehf. þar sem sótt er um lóðina við Búðarmel 27 á Reyðarfirði undir einbýlishús.

    Bæjarráð samþykkir að úthluta lóðinni.

  8. 8. 730 Búðarmelur 29 - Umsókn um lóð

    Mál 2108067 Allur ferill málsins

    Vísað frá eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd til afgreiðslu bæjarráðs lóðarumsókn AMC wave ehf. þar sem sótt er um lóðina við Búðarmel 29 á Reyðarfirði undir einbýlishús.

    Bæjarráð samþykkir að úthluta lóðinni.

  9. 9. 730 Búðarmelur 31 - Umsókn um lóð

    Mál 2108066 Allur ferill málsins

    Vísað frá eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd til afgreiðslu bæjarráðs lóðarumsókn AMC wave ehf þar sem sótt er um lóðina við Búðarmel 31 á Reyðarfirði undir einbýlishús.

    Bæjarráð samþykkir að úthluta lóðinni.

  10. 10. Fræðslunefnd - 100

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð fræðslunefndar frá 25. ágúst lögð fram til afgreiðslu.

    1. 10.1 Yfirfærsla á starfsemi Skólaskrifstofu Austurlands2104156
    2. 10.2 Skólaþing sveitarfélaga 20212106186
    3. 10.3 Skólabyrjun skólaársins 2021-20222108097
    4. 10.4 Starfs- og fjárhagsáætlun fræðslunefndar 20222104131
    5. 10.5 Samstarf við Heimili og skóla2108098
  11. 11. Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 294

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar frá 23. ágúst lögð fram til afgreiðslu.

    1. 11.1 Friðlýsing Gerpissvæðisins - Barðsnes2001205
    2. 11.2 Skilavegir - Ástandsmat2108085
    3. 11.3 Göngu- og hjólastígur á milli Reyðarfjarðar og Eskifjarðar2108093
    4. 11.4 Göngubrú og hraðahindranir á Stöðvarfirði2108094
    5. 11.5 Framtíðarlausn til meðhöndlunar brennanlegs úrgangs í stað urðunar2108095
    6. 11.6 730 Búðarmelur 27 - Umsókn um lóð2108068
    7. 11.7 730 Búðarmelur 29 - Umsókn um lóð2108067
    8. 11.8 730 Búðarmelur 31 - Umsókn um lóð2108066
    9. 11.9 735 Strandgata 98b - Umsókn um lóð2101035
    10. 11.10 735 Strandgata 40 - Umsókn um byggingarleyfi, niðurrif2108049
    11. 11.11 735 Strandgata 42 - Umsókn um byggingarleyfi, niðurrif2108048
    12. 11.12 Landbúnaðarnefnd - 282108004F
  12. 12. Landbúnaðarnefnd - 28

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð landbúnaðarnefndar frá 17. ágúst lögð fram til afgreiðslu.

    1. 12.1 Fjallskil og gangnaboð 20212103090
    2. 12.2 Fjárréttir í Fjarðabyggð1808042