Beint í efni
Hnotskurninn

Mál2021

Göngubrú og hraðahindranir á Stöðvarfirði

Mál 2108094 Fyrst á dagskrá 23. ágúst 2021, síðast 2. september 2021. 3 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn, Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd.

Í heiti málsins: StöðvarfjörðurSamgöngur

Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.

Ferill málsins

  • Málið var á dagskrá fundar
  • Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
Leið málsins í tímaröð, frá vinstri til hægri. Hver lína er ein nefnd eða ráð. Feita línan tengir fundina þar sem málið sjálft var á dagskrá. Guli reiturinn er síðasta færslan. Ýttu á punkt til að sjá færsluna.
  1. 2021

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd, fundur 294 liður 4

    Lagt fram erindi stjórnar Íbúasamtaka Stöðvarfjarðar þar sem óskað er eftir því að sett verði hraðahindrun á svæðinu við Skólabraut 14 og að hámarkshraði verði lækkaður niður í 30km/klst hraða á þeirri götu. Einnig er óskað eftir því að sett verði hraðahindrun fyrir ofan gatnamótin Túngata/Hólaland/Skólabraut og að sett verði göngubrú fyrir ofan akstursbrúna á Einarsstaðará með tilheyrandi gangstéttum/stígum og gangbraut á móts við grunnskólann.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd tekur vel í erindið og vísar frekari útfærslu og kostnaðargreiningu til sviðsstjóra framkvæmdasviðs og umhverfis- og skipulagssviðs.

  2. Bæjarráð, fundur 723 liður 11.4

    Fundargerðin „Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 294“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is

  3. Bæjarstjórn, fundur 317 liður 3.4

    Fundargerðin „Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 294“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is