Fræðslunefnd, fundur 100
25. ágúst 2021, kl. 16:30 til 17:05, í fjarfundi vegna COVID19. Fundargerð ritaði Þóroddur Helgason.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (9)
Fundinn sátu
- Einar Már Sigurðarson, formaður
- Sævar Örn Arngrímsson, aðalmaður
- Þorvarður Sigurbjörnsson, aðalmaður
- Jóhanna Sigfúsdóttir, aðalmaður
- Þuríður Lillý Sigurðardóttir, aðalmaður
- Alma Sigurbjörnsdóttir, áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Þóroddur Helgason, embættismaður
- Gerður Ósk Oddsdóttir, áheyrnarfulltrúi
- Laufey Þórðardóttir, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarráð, fundur 723 liður 10
Fundargerð fræðslunefndar frá 25. ágúst lögð fram til afgreiðslu.
Bæjarstjórn, fundur 317 liður 5
Enginn tók til máls.
Fundargerð fræðslunefndar frá 23.ágúst samþykkt með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Yfirfærsla á starfsemi Skólaskrifstofu Austurlands
Mál 2104156 Allur ferill málsins
Fræðslustjóri greindi fræðslunefnd frá yfirfærslu á starfsemi A-hluta Skólaskrifstofu Austurlands til fjölskyldusviðs Fjarðabyggðar. Mikil ánægja er á fjölskyldusviði með liðstyrkinn og starfsfólk spennt að takast á við þau verkefni sem bíða. Fræðslunefnd óskar starfsfólki fjölskyldusviðs velfarnaðar í þeirra mikilvægu störfum.
-
2. Skólaþing sveitarfélaga 2021
Mál 2106186 Allur ferill málsins
Kynnt bréf frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga þar sem athygli er vakin á fyrirhuguðu skólaþingi sveitarfélaga sem ráðgert er að halda 8. nóvember næstkomandi. Í ár eru 25 ár liðin frá því allur rekstur grunnskóla var færður frá ríki til sveitarfélaga. Á þeim aldarfjórðungi sem liðinn er hafa verið stigin marvísleg framfaraskref og skólahald breyst og þróast til betri vegar. Við þessi tímamót verður staldra við og litið yfir farinn veg en þó fyrst og fremst tekin staðan og horft fram á veginn til næstu 25 ára. Eftirfarandi spurning liggur fyrir þinginu: Hvernig viljum við sjá skólastarf þróast til framtíðar og hvernig leggjum við okkar lóð á vogarskálarnar svo unnt verði uppfylla þá framtíðarsýn? Fræðslunefnd felur formanni nefndarinnar að sitja skólaþingið fyrir hönd nefndarinnar.
-
3. Skólabyrjun skólaársins 2021-2022
Mál 2108097 Allur ferill málsins
Fræðslustjóri gerði grein fyrir skólabyrjun skólaársins 2021-2022. Skólahald fer vel af stað og búið að ráða í flestar lausar stöður. Skólaþjónustan hefur verið í sambandi við skólana nú í byrjun skólaársins og stillt saman strengi með starfsfólki skólanna.
-
4. Starfs- og fjárhagsáætlun fræðslunefndar 2022
Mál 2104131 Allur ferill málsins
Farið var yfir tillögu nefndarinnar til bæjarráðs frá vorinu 2021. Frekari umræðu frestað til næsta fundar.
-
5. Samstarf við Heimili og skóla
Mál 2108098 Allur ferill málsins
Fræðslustjóri kynnti drög að samningi við Heimili og skóla um fræðslu til foreldrafélaga í Fjarðabyggð. Fræðslunefnd fagnar auknu samstarfi við Heimili og skóla og felur fræðslustjóra að vinna málið áfram.