Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirFræðslunefnd

Fræðslunefnd, fundur 101

8. september 2021, kl. 16:30 til 17:30, í Molanum fundarherbergi 1 og 2. Fundargerð ritaði Þóroddur Helgason.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (8)

Fundinn sátu

  • Einar Már Sigurðarson, formaður
  • Sævar Örn Arngrímsson, aðalmaður
  • Þorvarður Sigurbjörnsson, aðalmaður
  • Þuríður Lillý Sigurðardóttir, aðalmaður
  • Alma Sigurbjörnsdóttir, áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Þóroddur Helgason, embættismaður
  • Lísa Lotta Björnsdóttir, áheyrnarfulltrúi
  • Laufey Þórðardóttir, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 725 liður 9

    Fundargerð fræðslunefndar lögð fram til afgreiðslu.

  • Bæjarstjórn, fundur 318 liður 5

    Til máls tóku: Pálína Margeirsdóttir, Eydís Ásbjörnsdóttir.

    Fundargerð fræðslunefndar frá 8. september sl. staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. fundaáætlun fræðslunefndar haustið 2021

    Mál 2109018 Allur ferill málsins

    Fyrir liggja drög að fundaáætlun fræðslunefndar fyrir haustið 2021. Fræðslunefnd samþykkir fyrirliggjandi áætlun.

  2. 2. Starfs- og fjárhagsáætlun fræðslunefndar 2022

    Mál 2104131 Allur ferill málsins

    Farið var yfir úthlutaðan fjárhagsramma nefndarinnar fyrir árið 2022 og áætlanir fræðslunefndar frá því í júní 2021. Fræðslustjóra er falið að hefja vinnu við launaáætlun fyrir árið 2022. Frekari umræðu frestað til næsta fundar.

  3. 3. Fjárhagsáætlun - Sex mánaða yfirlit

    Mál 2109048 Allur ferill málsins

    Farið var yfir 6 mánaða yfirlit fjárhagsáætlunar fræðsludeildar.

  4. 4. Samstarf grunnskólanna í Fjarðabyggð við Verkmenntaskóla Austurlands

    Mál 2109047 Allur ferill málsins

    Fræðslustjóri greindi frá samstarfsverkefni grunnskólanna í Fjarðabyggð og Verkmenntaskóla Austurlands, sem hleypt var af stokkunum síðast liðinn fimmtudag. Verkefnið er liður í að gera námið fjölbreyttara með því að efla verklega kennslu í skólunum og nýta til þess sérþekkingu og tæknibúnað VA. Nemendum í 9. og 10. bekk grunnskólanna velja sér tvær valgreinar af eftirfarandi sex greinum: Málmur og vél, Bifreiðar, Húð og hár, Rafmagn, Húsasmíði og Fablab og fá 16 kennslustundir í hvorri grein nú á haustönn. Kennt er á fimmtudögum eftir hádegi. Nemendur í 10. bekk skólanna auk nemenda í 9. bekk Breiðdals- og Stöðvarfjarðarskóla byrjuðu síðasta fimmtudag og verða í 8 vikur og þá taka við nemendur í 9. bekk og verða næstu 8 vikurnar. Fræðslunefnd fagnar framtakinu.