Samstarf grunnskólanna í Fjarðabyggð við Verkmenntaskóla Austurlands
Mál 2109047 Fyrst á dagskrá 8. september 2021, síðast 16. september 2021. 3 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn, Fræðslunefnd.
Í heiti málsins: Skólar og fræðsla
Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.
Ferill málsins
- Málið var á dagskrá fundar
- Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
-
2021
Fræðslunefnd, fundur 101 liður 4
Fræðslustjóri greindi frá samstarfsverkefni grunnskólanna í Fjarðabyggð og Verkmenntaskóla Austurlands, sem hleypt var af stokkunum síðast liðinn fimmtudag. Verkefnið er liður í að gera námið fjölbreyttara með því að efla verklega kennslu í skólunum og nýta til þess sérþekkingu og tæknibúnað VA. Nemendum í 9. og 10. bekk grunnskólanna velja sér tvær valgreinar af eftirfarandi sex greinum: Málmur og vél, Bifreiðar, Húð og hár, Rafmagn, Húsasmíði og Fablab og fá 16 kennslustundir í hvorri grein nú á haustönn. Kennt er á fimmtudögum eftir hádegi. Nemendur í 10. bekk skólanna auk nemenda í 9. bekk Breiðdals- og Stöðvarfjarðarskóla byrjuðu síðasta fimmtudag og verða í 8 vikur og þá taka við nemendur í 9. bekk og verða næstu 8 vikurnar. Fræðslunefnd fagnar framtakinu.
-
Bæjarráð, fundur 725 liður 9.4
Fundargerðin „Fræðslunefnd - 101“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.
-
Bæjarstjórn, fundur 318 liður 5.4
Fundargerðin „Fræðslunefnd - 101“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.