Bæjarstjórn, fundur 318
16. september 2021, kl. 16:00 til 00:00, í fjarfundi. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (11)
Fundinn sátu
- Eydís Ásbjörnsdóttir, forseti bæjarstjórnar
- Jón Björn Hákonarson, bæjarstjóri
- Pálína Margeirsdóttir, aðalmaður
- Sigurður Ólafsson, aðalmaður
- Valdimar Másson, varamaður
- Magni Þór Harðarson, varamaður
- Elísabet Esther Sveinsdóttir, varamaður
- Ragnar Sigurðsson, aðalmaður
- Rúnar Már Gunnarsson, aðalmaður
Starfsmenn
- Gunnar Jónsson, embættismaður
- Þórður Vilberg Guðmundsson, embættismaður
Dagskrá
-
1. Bæjarráð - 724
Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.
Til máls tóku: Sigurður Ólafsson, Jón Björn Hákonarson, Eydís Ásbjörnsdóttir, Rúnar Már Gunnarsson.
Fundargerð bæjarráðs frá 6. september sl. staðfest með 9 atkvæðum.
- 1.1 Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2022-20252104074
- 1.2 Nýtt skipulag almannavarna í maí 20212105157
- 1.3 Flúormælingar í Reyðarfirði 20212109007
- 1.4 Skóladagatöl 2021-20222012161
- 1.5 Umsókn um styrk vegna fornleifarannsókna í Stöðvarfirði 20222108149
- 1.6 Forkaupsréttur að Áka í Brekku2103041
- 1.7 Heimsókn til Gavelines í september 20212106165
- 1.8 Ársreikningur Hitaveitu Fjarðabyggðar 20202109026
- 1.9 Ársreikningur Rafveitu Reyðarfjarðar 20202109025
- 1.10 Málefni Sköpunarmiðstöðvarinnar 2020 - 20212004118
- 1.11 Fundargerðir Samband Íslenskra sveitarfélaga 20212102016
-
2. Bæjarráð - 725
Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.
Fundargerð bæjarráðs frá 13. september sl. staðfest með 9 atkvæðum.
- 2.1 Rekstur málaflokka 2021 - TRÚNAÐARMÁL2104079
- 2.2 Starfs- og fjárhagsáætlun bæjarráðs 20222104135
- 2.3 Samningur við Vini Valhallar vegna reksturs félagsheimilisins2106069
- 2.4 740 Kirkjubólseyri 14 - Umsókn um lóð, hesthús2108121
- 2.5 Geymslusvæði og stöðuleyfi fyrir gáma og lausafé í Fjarðabyggð1402076
- 2.6 Námsstefna í Hollandi í október 20212109128
- 2.7 Nefndaskipan Sjálfstæðisflokks 2018 - 20221806146
- 2.8 Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 2952109005F
- 2.9 Fræðslunefnd - 1012109003F
- 2.10 Menningar- og nýsköpunarnefnd - 402108017F
- 2.11 Hafnarstjórn - 2662109006F
- 2.12 Íþrótta- og tómstundanefnd - 912109001F
- 2.13 Barnaverndarnefnd 20212101080
-
3. Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 295
Til máls tóku: Eydís Ásbjörnsdóttir, Jón Björn Hákonarson.
Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar frá 6. september sl. staðfest með 9 atkvæðum.
- 3.1 Flúormælingar í Reyðarfirði 20212109007
- 3.2 Alcoa Foundation, umhverfisverkefni 20212104047
- 3.3 Umhverfis- og loftlagsstefna Fjb. 2020-2040 - innleiðing2106148
- 3.4 Fjárréttir í Fjarðabyggð1808042
- 3.5 Endurskoðun Aðalskipulags Fjarðabyggðar 2007-20271810136
- 3.6 740 Þiljuvellir 21 - Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi2108054
- 3.7 740 Kirkjubólseyri 14 - Umsókn um lóð, hesthús2108121
- 3.8 740 Egilsbraut 21 - Umsókn um byggingarleyfi breyta skráningu húss2108087
- 3.9 740 Mýrargata 10 - Umsókn um byggingarleyfi, breytt innra skipulag2108091
- 3.10 Geymslusvæði og stöðuleyfi fyrir gáma og lausafé í Fjarðabyggð1402076
- 3.11 Grænn orkugarður á Reyðarfirði2108124
- 3.12 730 Hagar - Umsókn um stöðuleyfi, vinnubúðir2109060
- 3.13 Umsókn um framkvæmdaleyfi í Stuðlaá - rofavörn við jarðstreng Stuðlalínu 12109055
-
4. Hafnarstjórn - 266
Enginn tók til máls.
Fundargerð hafnarstjórnar frá 7. september sl. staðfest með 9 atkvæðum.
- 4.1 Grænn orkugarður á Reyðarfirði2108124
- 4.2 Verkefni hafnarsjóðs1908100
- 4.3 Umsókn um leyfi - Rannsóknir á fuglalífi2109030
- 4.4 Styrkumsókn - Útsæði - 20212106172
- 4.5 Fundargerðir Hafnasambands Íslands 20212101212
-
5. Fræðslunefnd - 101
Til máls tóku: Pálína Margeirsdóttir, Eydís Ásbjörnsdóttir.
Fundargerð fræðslunefndar frá 8. september sl. staðfest með 9 atkvæðum.
- 5.1 fundaáætlun fræðslunefndar haustið 20212109018
- 5.2 Starfs- og fjárhagsáætlun fræðslunefndar 20222104131
- 5.3 Fjárhagsáætlun - Sex mánaða yfirlit2109048
- 5.4 Samstarf grunnskólanna í Fjarðabyggð við Verkmenntaskóla Austurlands2109047
-
6. Íþrótta- og tómstundanefnd - 91
Enginn tók til máls.
Fundargerð íþrótta- og tómstundanefndar frá 6. september sl. staðfest með 9 atkvæðum.
- 6.1 Uppsetning á útiæfingatækjum
- 6.2 Sumar opnun í veitingaskála í Oddsskarði
- 6.3 Fundaáætlun íþrótta- og tómstundanefndar vor og haust 2021
- 6.4 Sumarfrístund 2021
- 6.5 Starfs- og fjárhagsáætlun íþrótta- og tómstundanefndar 2022
-
7. Menningar- og nýsköpunarnefnd - 40
Enginn tók til máls.
Fundargerð menningar- og nýsköpunarnefndar frá 6. september sl. staðfest með 9 atkvæðum.
- 7.1 Grænn orkugarður á Reyðarfirði2108124
- 7.2 Útgáfa á sögu Fáskrúðsfjarðar2006128
- 7.3 Staðsetning tjaldsvæðis á Stöðvarfirði2108111
- 7.4 Starfs- og fjárhagsáætlun menningar- og nýsköpunarnefndar 20222104130
- 7.5 Málþing um súðbyrðinginn2009198
- 7.6 Menningarstyrkir 20212101186
- 7.7 Skapandi sumarstörf 20212102121
- 7.8 Umsókn um styrk vegna fornleifarannsókna í Stöðvarfirði 20222108149
-
8. Barnaverndarnefnd 2021
Mál 2101080 Allur ferill málsins
Enginn tók til máls.
Fundargerð barnaverndarnefndar frá 9. september sl. staðfest með 9 atkvæðum.
-
9. Endurskoðun Aðalskipulags Fjarðabyggðar 2007-2027
Mál 1810136 Allur ferill málsins
Forseti bæjarstjórnar mælti fyrir tillögu að endurskoðuðu aðalskipulagi Fjarðabyggðar í framhaldi af athugunun Skipulagsstofnunar fyrir auglýsingu.
Vísað frá eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd til afgreiðslu bæjarstjórnar tillögum um breytingar sem bárust frá Skipulagsstofnun ásamt tillögu nefndarinnar að stækkun reits I-500 á Stöðvarfirði og auglýsingu á uppfærðum aðalskipulagsdrögum.
Enginn tók til máls.
Bæjarstjórn samþykkir með 9 atkvæðum tillögur að breytingum ásamt auglýsingu aðalskipulagsins.
-
10. Forkaupsréttur að Áka í Brekku
Mál 2103041 Allur ferill málsins
Forseti bæjarstjórnar mælti fyrir máli.
Vísað frá bæjarráði til afgreiðslu bæjarstjórnar tillögu um að Fjarðabyggð falli frá forkaupsrétti á bátnum Áka í Brekku. Eftir að Áki í Brekku (2660) var seldur í mars 2021 var skipt um nafn á bátnum. Báturinn sem var tekinn upp í í þeirri sölu fékk einnig nafnið Áki í Brekku (2790). Verið er að selja þann bát og kaupa annan sem mun fá þetta sama nafn og er með skráningarnúmerið 2672.
Enginn tók til máls.
Bæjarstjórn samþykkir með 9 atkvæðum að falla frá forkaupsrétti á bátnum Áka í Brekku (2790).
-
11. Alþingiskosningar 2021
Mál 2012054 Allur ferill málsins
Forseti bæjarstjórnar mælti fyrir kjörskrárstofni og umboði til bæjarstjóra.
Bæjarráð fól bæjarstjóra á fundi sínum 23. ágúst sl. að semja kjörskrá vegna Alþingiskosninga 25. september 2021.
Kjörskrárstofn Fjarðabyggðar er sem hér segir:
Mjóifjörður - 13
Neskaupstaður - 1.031
Eskifjörður - 656
Reyðarfjörður - 858
Fáskrúðsfjörður - 457
Stöðvarfjörður - 136
Breiðdalur - 142
Samtals - 3.293
Enginn tók til máls.
Bæjarstjórn samþykkir með 9 atkvæðum kjörskrárstofn Fjarðabyggðar og fullnaðarheimild bæjarstjóra til að fjalla um athugasemdir, gera nauðsynlegar leiðréttingar og úrskurða um ágreiningsmál sem kunna að vera gerðar fram að kjördegi. Bæjarstjóri getur ávallt vísað úrskurðum um ágreiningsmál til bæjarráðs.