Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirHafnarstjórn

Hafnarstjórn, fundur 266

7. september 2021, kl. 16:30 til 18:15, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Birgitta Rúnarsdóttir.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (7)

Fundinn sátu

  • Sigurður Ólafsson, formaður
  • Björgvin V Guðmundsson, varamaður
  • Arnfríður Eide Hafþórsdóttir, aðalmaður
  • Rúnar Már Gunnarsson, aðalmaður

Starfsmenn

  • Jón Björn Hákonarson, bæjarstjóri
  • Marinó Stefánsson, embættismaður
  • Birgitta Rúnarsdóttir, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 725 liður 11

    Fundargerð hafnarstjórnar lögð fram til afgreiðslu.

  • Bæjarstjórn, fundur 318 liður 4

    Enginn tók til máls.

    Fundargerð hafnarstjórnar frá 7. september sl. staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Grænn orkugarður á Reyðarfirði

    Mál 2108124 Allur ferill málsins

    Hafnarstjóri fór yfir málefni tengd viljayfirlýsingu Fjarðabyggðar, Landsvirkjunar og CIP um þróun græns orkugarðs í Reyðarfirði. Hafnarstjórn felur hafnarstjóra að vinna málið áfram á grundvelli umræðna á fundinum og leggja fyrir nefndina að nýju.

  2. 2. Verkefni hafnarsjóðs

    Mál 1908100 Allur ferill málsins

    Farið yfir stöðu framkvæmda og viðhaldsverkefna á árinu 2021

  3. 3. Umsókn um leyfi - Rannsóknir á fuglalífi

    Mál 2109030 Allur ferill málsins

    Lögð fyrir umsókn Náttúrustofu Austurlands um leyfi til að setja út baujur í Reyðarfirði tímabundið vegna rannsókna á fuglalífi við laxeldissvæði. Hafnarstjórn samþykkir umsókn Náttúrustofu Austurlands fyrir sitt leyti.

  4. 4. Styrkumsókn - Útsæði - 2021

    Mál 2106172 Allur ferill málsins

    Bæjarhátíðin Útsæði óskar eftir styrk. Hafnarstjórn samþykkir að styrkja bæjarhátíðina Útsæði, verði hátíðin haldin.

  5. 5. Fundargerðir Hafnasambands Íslands 2021

    Mál 2101212 Allur ferill málsins

    Fundargerð stjórnar Hafnasambands Íslands frá 20.ágúst lögð fram til kynningar.