Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirHafnarstjórn

Hafnarstjórn, fundur 267

21. september 2021, kl. 16:30 til 18:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Birgitta Rúnarsdóttir.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (8)

Fundinn sátu

  • Sigurður Ólafsson, formaður
  • Björgvin V Guðmundsson, varamaður
  • Sævar Guðjónsson, aðalmaður
  • Arnfríður Eide Hafþórsdóttir, aðalmaður
  • Rúnar Már Gunnarsson, aðalmaður

Starfsmenn

  • Jón Björn Hákonarson, bæjarstjóri
  • Marinó Stefánsson, embættismaður
  • Birgitta Rúnarsdóttir, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 727 liður 9

    Fundargerð hafnarstjórnar frá 21.september lögð fram til afgreiðslu.

  • Bæjarstjórn, fundur 319 liður 5

    Enginn tók til máls.

    Fundargerð hafnarstjórnar frá 21. september staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Starfs- og fjárhagsáætlun hafnarstjórnar 2022

    Mál 2104136 Allur ferill málsins

    Starfs- og fjárhagsáætlun hafnarstjórnar 2022. Farið yfir forsendur launaáætlunar ársins 2022.

    Hafnarstjórn felur sviðstjóra framkvæmdasviðs og verkefnastjóra hafna að vinna málið áfram í samræmi við umræður á fundinum og leggja fyrir í fjárhagsáætlunarvinnu. Áframhald fjárhagsáætlunarvinnu fer fram á næsta fundi.

  2. 2. Gjaldskrá Fjarðabyggðarhafna 2022

    Mál 2109073 Allur ferill málsins

    Gjaldskrá hafna 2022 lögð fram til umræðu. Verkefnastjóra hafna falið að vinna að breytingu í samræmi við umræður á fundinum og leggja fyrir að nýju.

  3. 3. Beiðni um styrk til endurgerðar á bryggju

    Mál 2109185 Allur ferill málsins

    Lögð fram beiðni frá Agli Helga Árnasyni um styrk til endurgerðar á bryggju við sjóhús að Strandgötu 98a á Eskifirði.

    Hafnarstjórn felur hafnarstjóra að ræða við styrkbeiðanda og leggja fyrir nefndina að nýju.

  4. 4. Erindi vegna bryggju og frárennslisrörs á Breiðdalsvík

    Mál 2109186 Allur ferill málsins

    Lagt fram erindi frá Elís Pétri Elíssyni vegna bryggju og frárennslisrörs á Breiðdalsvík.

    Hafnarstjórn felur sviðstjóra framkvæmdasviðs og forstöðumanni veitna að skoða málið í samræmi við umræður á fundinum og leggja fyrir hafnarstjórn að nýju.