Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 727

27. september 2021, kl. 08:30 til 10:00, í Molanum fundarherbergi 3. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)

Fundinn sátu

  • Sigurður Ólafsson, formaður
  • Pálína Margeirsdóttir, varaformaður
  • Ragnar Sigurðsson, aðalmaður
  • Rúnar Már Gunnarsson, áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Jón Björn Hákonarson, bæjarstjóri
  • Gunnar Jónsson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarstjórn, fundur 319 liður 2

    Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.

    Fundargerð bæjarráðs frá 27. september staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Fjárhagsáætlun og veikindalaun

    Mál 2109223 Allur ferill málsins

    Lögð fram tillaga fjármálastjóra, mannauðsstjóra og bæjarstjóra um meðferð launakostnaðar vegna fjarvista og veikinda við gerð fjárhagsáætlunar.

    Bæjarráð samþykkir að fjármögnun veikindalauna verði metin tvisvar á ári og gert ráð fyrir í sérstökum viðauka við fjárhagsáætlun, samanber leið 3 í minnisblaði.

  2. 2. Samningur um Réttarholt 1-3 Reyðarfirði við Leigufélagið Bríet

    Mál 2109224 Allur ferill málsins

    Lögð fram drög að samningi við Leigufélagið Bríet um kaup á íbúðum Fjarðabyggðar að Réttarholti 1-3 á Reyðarfirði í skiptum fyrir hlutafé í Leigufélaginu Bríet.

    Bæjarráð samþykkir samninginn og felur bæjarstjóra undirritun hans. Sölunni vísað til gerðar viðauka við fjárhagsáætlun.

  3. 3. Drög að breytingum á leiðbeiningum um ritun fundargerða nr. 222013 og notkun fjarfundarbúnaðar nr. 11402013

    Mál 2109028 Allur ferill málsins

    Framlagt bréf Samgöngu og sveitarstjórnarráðuneytis um breytingar á sveitarstjórnarlögum 96/2021 sem veita heimildir til fjarfunda og rafrænna undirritana. Vísað til skoðunar hjá bæjarritara til endurskoðunar á samþykktum sveitarfélagsins.

  4. 4. Sveitarfélögin og heimsmarkmiðin

    Mál 1901204 Allur ferill málsins

    Framlagt bréf Sambands íslenskra sveitarfélaga um styrk frá Jöfnunarsjóði sveitarfélaga til stuðnings við innleiðingu heimsmarkmiða sveitarfélaga á grundvelli verkfærakistu um heimsmarkmiðin.

    Bæjarráð samþykkir að tengiliðir verði forseti bæjarstjórnar og umhverfisstjóri. Jafnframt er umhverfisstjóra falið að sækja um stuðning vegna grunnstuðnings (hópur 1) fyrir 15. október nk.

  5. 5. 730 Melbrekka 7 - umsókn um lóð

    Mál 2109110 Allur ferill málsins

    Vísað frá eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd til afgreiðslu bæjarráðs lóðarumsókn Guðmundar Páls Pálssonar þar sem sótt er um lóðina við Melbrekku 7 á Reyðarfirði undir einbýlishús.

    Bæjarráð samþykkir að úthluta lóðinni.

  6. 6. Ofanflóðahætta ofan Eskifjarðar - íbúafundur

    Mál 2109236 Allur ferill málsins

    Bæjarstjóri kynnti fyrirhugaðan íbúafund á Eskifirði um vöktun og eftirlit vegna ofanflóðahættu ofan byggðarinnar. Fundurinn verður 11. október kl. 20:00.

    Upplýsingafulltrúa falið að hafa samband við Veðurstofu vegna undirbúnings fundarins.

  7. 7. Aðalfundarboð Sjóminjasafns Austurlands 2021

    Mál 2109235 Allur ferill málsins

    Framlagt aðalfundarboð Sjóminjsafns Austurlands en boðaður er fundur 13. október 2021 kl. 17:00

    Bæjarráð samþykkir að fela bæjarstjóra að fara með umboð Fjarðabyggðar á aðalfundinum.

  8. 8. Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 296

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar frá 21.september lögð fram til afgreiðslu.

    1. 8.1 Umhverfis- og loftlagsstefna Fjb. 2020-2040 - innleiðing2106148
    2. 8.2 Starfs- og fjárhagsáætlun ESU nefndar 20222104129
    3. 8.3 Gjaldskrá fyrir hunda- og kattahald í Fjarðabyggð 20222109084
    4. 8.4 730 Deiliskipulag Bakkagerði 1, breyting, Litlagerði2109171
    5. 8.5 730 Deiliskipulag Melur 1 - Umsókn um breytingu á deiliskipulagi, Búðarmelur 7 og 92109140
    6. 8.6 735 Deiliskipulag, Dalur 2, breyting, Miðdalur, Ystidalur, Árdalur2109172
    7. 8.7 730 Framkvæmdaleyfi - nýlagnir á Reyðarfirði2109112
    8. 8.8 Fyrirspurn um framkvæmdaleyfi vegna efnistöku í Björgunum í Reyðarfirði2109139
    9. 8.9 730 Melbrekka 7 - umsókn um lóð2109110
    10. 8.10 730 Litlagerði 2, 4 og 6 - Umsókn um lóð2107095
    11. 8.11 735 Ystidalur 6-8 - Umsókn um lóð2107096
    12. 8.12 735 Miðdalur 17-19 - Umsókn um lóð2107097
    13. 8.13 730 Austurvegur 29 - Umsókn um byggingarleyfi, breytt starfsemi húss2109127
    14. 8.14 730 Holtagata 3 - Umsókn um byggingarleyfi, bílskúr2109144
    15. 8.15 740 Blómsturvellir 41 - Umsókn byggingarleyfi, einbýlishús2107090
    16. 8.16 750 Gilsholt 6 - Umsókn um byggingarleyfi, raðhús2108145
    17. 8.17 750 Gilsholt 8 - Umsókn byggingarleyfi, raðhús2108147
    18. 8.18 750 Borgarstígur 1 - umsókn um byggingarleyfi, setja upp hárgreiðslustofu á neðri hæð2108116
    19. 8.19 730 Ásgerði 8 - Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi2109022
    20. 8.20 740 Hlíðargata 28 - umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi2109099
    21. 8.21 740 Urðarteigur 5 - Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi2106167
    22. 8.22 740 Miðstræti 8a - Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi2109135
    23. 8.23 750 Skólavegur 24 - Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi2109152
    24. 8.24 760 Sólbakki 5 - umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi2109098
    25. 8.25 Skilavegir - Ástandsmat2108085
    26. 8.26 750 Hafnargata - Kæra vegna útgáfu byggingarleyfis2108106
    27. 8.27 Fundargerðir Heilbrigðiseftirlits Austurlands 20212102187
    28. 8.28 Trjákurl til húshitunar1905004
  9. 9. Hafnarstjórn - 267

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð hafnarstjórnar frá 21.september lögð fram til afgreiðslu.

    1. 9.1 Starfs- og fjárhagsáætlun hafnarstjórnar 20222104136
    2. 9.2 Gjaldskrá Fjarðabyggðarhafna 20222109073
    3. 9.3 Beiðni um styrk til endurgerðar á bryggju2109185
    4. 9.4 Erindi vegna bryggju og frárennslisrörs á Breiðdalsvík2109186
  10. 10. Félagsmálanefnd - 146

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð félagsmálanefndar frá 21.september lögð fram til afgreiðslu.

    1. 10.1 Umsókn um rekstrarstyrk fyrir árið 20212102136
    2. 10.2 Starfs- og fjárhagsáætlun félagsmálanefndar 20222104133
    3. 10.3 Gjaldskrá Fjölskyldusviðs vegna stuðningsfjölskyldna við fötluð börn 20222109076
    4. 10.4 Gjaldskrá stuðningsþjónustu 20222109090
    5. 10.5 Gjaldskrá þjónustuíbúða í Breiðablik 20222109096
    6. 10.6 Jólasjóður 20212109184