750 Gilsholt 8 - Umsókn byggingarleyfi, raðhús
Mál 2108147 Fyrst á dagskrá 21. september 2021, síðast 5. október 2021. 3 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn, Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd.
Í heiti málsins: Byggingar og framkvæmdir
Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.
Ferill málsins
- Málið var á dagskrá fundar
- Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
-
2021
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd, fundur 296 liður 17
Lögð fram byggingarleyfisumsókn Nýjatúns ehf, dagsett 30. ágúst 2021, þar sem óskað er eftir að heimild til að byggja 256,4 m2 og 883.3 m3 fjögurra íbúða raðhús á lóð fyrirtækisins að Gilsholti 8 a-d á Fáskrúðsfirði.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir umsóknina. Nefndin samþykkir jafnframt óverulega breytingu deiliskipulagi Holtahverfis. Farið verði með breytinguna í samræmi við 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 þar sem um svo óveruleg frávik er að ræða að hagsmunir nágranna skerðist í engu hvað varðar landnotkun, útsýni, skuggavarp eða innsýn.
-
Bæjarráð, fundur 727 liður 8.17
Fundargerðin „Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 296“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.
-
Bæjarstjórn, fundur 319 liður 4.17
Fundargerðin „Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 296“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.