Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirFélagsmálanefnd

Félagsmálanefnd, fundur 146

21. september 2021, kl. 16:15 til 17:15, í Molanum fundarherbergi 1 og 2. Fundargerð ritaði Óskar Sturluson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (9)

Fundinn sátu

  • Hjördís H. Seljan Þóroddsdóttir
  • Ásmundur Páll Hjaltason, varaformaður
  • Heiðar Már Antonsson, aðalmaður
  • Valdimar Másson, aðalmaður
  • Guðfinna Erlín Stefánsdóttir, aðalmaður
  • Lára Elísabet Eiríksdóttir, áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Helga Elísabet Beck Guðlaugsdóttir, embættismaður
  • Laufey Þórðardóttir, embættismaður
  • Óskar Sturluson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 727 liður 10

    Fundargerð félagsmálanefndar frá 21.september lögð fram til afgreiðslu.

  • Bæjarstjórn, fundur 319 liður 6

    Til máls tók Hjördís Helga Seljan Þóroddsdóttir.

    Fundargerð félagsmálanefndar frá 21. september staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Umsókn um rekstrarstyrk fyrir árið 2021

    Mál 2102136 Allur ferill málsins

    Stjórnendur kynna beiðni kvennaathvarfsins um styrk að fjárhæð kr. 400.000, vegna rekstrarársins 2021. Kynnt er að gert sé ráð fyrir styrknum á fjárhagsáætlun ársins. Nefndin samþykkir að greiða styrk til kvennaathvarfsins, að fjárhæð kr. 400.000 í samræmi við beiðnina.

  2. 2. Starfs- og fjárhagsáætlun félagsmálanefndar 2022

    Mál 2104133 Allur ferill málsins

    Stjórnendur kynna fyrir nefndinni bréf fjármálastjóra varðandi fjárhagsramma fjölskyldusviðs fyrir árið 2022. Félagsmálanefnd felur stjórnendum að vinna starfs- og fjárhagsáætlun 2022 í samræmi við reglur sveitarfélagsins þar um og leggja fyrir næsta fund nefndarinnar. Frekari umræðu er frestað til næsta fundar.

  3. 3. Gjaldskrá Fjölskyldusviðs vegna stuðningsfjölskyldna við fötluð börn 2022

    Mál 2109076 Allur ferill málsins

    Gjaldskrá vegna þjónustu stuðningsfjölskyldna er tekin til umræðu. Félagsmálanefnd samþykkir að gjaldskráin verði óbreytt, þ.e. að hún taki aðeins þeim breytingum sem innfelldar eru í gjaldskránni sjálfri, þar sem mælt er fyrir um að greiðslur taki mið að barnalífeyri hverju sinni.

  4. 4. Gjaldskrá stuðningsþjónustu 2022

    Mál 2109090 Allur ferill málsins

    Gjaldskrá um stuðningsþjónustu 2022 er tekin til umfjöllunar. Félagsmálanefnd ákveður að fresta frekari umræðu um gjaldskrána til næsta fundar nefndarinnar.

  5. 5. Gjaldskrá þjónustuíbúða í Breiðablik 2022

    Mál 2109096 Allur ferill málsins

    Gjaldskrá um þjónustuíbúðir fyrir aldraða er tekin til umfjöllunar. Félagsmálanefnd ákveður að fresta frekari umræðu um gjaldskrána til næsta fundar nefndarinnar.

  6. 6. Jólasjóður 2021

    Mál 2109184 Allur ferill málsins

    Stjórnendur kynna minnisblað stjórnanda félagsþjónustu- og barnaverndar um jólasjóð. Félagsmálanefnd samþykkir að Fjarðabyggð komi að málefnum sjóðsins með þeim hætti sem mælt er með í minnisblaðinu, það er að aðrir samstarfsaðilar taki að sér að afgreiða umsóknir í sjóðinn og að hlutverk fjölskyldusviðs verði fyrst og fremst að leiðbeina umsækjendum varðandi umsóknir og eftir atvikum að aðstoða samstarfsaðila við frágang. Ákvarðanir um greiðslur úr sjóðnum verði ekki á höndum fjölskyldusviðs.