Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirFélagsmálanefnd

Félagsmálanefnd, fundur 147

12. október 2021, kl. 16:15 til 17:15, í Molanum fundarherbergi 1 og 2. Fundargerð ritaði Óskar Sturluson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (5)

Fundinn sátu

  • Heiðar Már Antonsson, aðalmaður
  • Valdimar Másson, aðalmaður
  • Guðfinna Erlín Stefánsdóttir, aðalmaður
  • Lára Elísabet Eiríksdóttir, áheyrnarfulltrúi
  • Hjördís H. Seljan Þóroddsdóttir, formaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 730 liður 23

    Fundargerð félagsmálanefndar frá 13.október lögð fram til afgreiðslu.

  • Bæjarstjórn, fundur 320 liður 7

    Enginn tók til máls.

    Fundargerð félagsmálanefndar frá 12. október staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Umhverfis- og loftlagsstefna Fjb. 2020-2040 - innleiðing

    Mál 2106148 Allur ferill málsins

    Umhverfisstjóri kynnir minnisblað sitt um innleiðingu umhverfis- og loftslagsstefnu Fjarðabyggðar 2020-2040. Félagsmálanefnd lýsir fullum stuðningi við verkefnið og fagnar innleiðingunni. Félagsmálanefnd tilnefndir formann nefndarinnar og einn aðalmann nefndarinnar til þátttöku í starfshópi til rýnis á innleiðingarferlum starfsstöðva. Í dag er um að ræða Hjördísi Helgu Seljan Þóroddsdóttur og Guðfinnu Erlínu Stefánsdóttur.

  2. 2. Gjaldskrá Fjölskyldusviðs vegna stuðningsfjölskyldna 2022

    Mál 2109076 Allur ferill málsins

    Félagsmálanefnd samþykkir fyrir sitt leyti, að gjaldskrá vegna þjónustu stuðningsfjölskyldna verði óbreytt árið 2022. Afgreiðslu er vísað til bæjarráðs.

  3. 3. Gjaldskrá stuðningsþjónustu 2022

    Mál 2109090 Allur ferill málsins

    Félagsmálanefnd samþykkir fyrir sitt leyti, að gjaldskrá fyrir stuðningsþjónustu í Fjarðabyggð, skv. heimild 26. gr. laga um félagsþjónustu sveitarfélaga nr. 40/1991, hækki um 2,4% frá 1. janúar 2022. Afgreiðslu er vísað til bæjarráðs.

  4. 4. Gjaldskrá þjónustuíbúða í Breiðablik 2022

    Mál 2109096 Allur ferill málsins

    Félagsmálanefnd samþykkir, fyrir sitt leyti, að gjaldskrá fyrir þjónustugjald í Breiðabliki, íbúðum aldraðra samkvæmt heimild í 20. gr. laga nr. 125/1999 um málefni aldraðra, hækki um 2,4% frá og með 1. janúar 2022. Afgreiðslu vísað til bæjarráðs.

  5. 5. Starfs- og fjárhagsáætlun félagsmálanefndar 2022

    Mál 2104133 Allur ferill málsins

    Starfsmenn félagsmálanefndar kynna minnisblað vegna fjárhagsáætlunar félagsmála 2022. Félagsmálanefnd samþykkir, fyrir sitt leyti, tillögur starfsmanna nefndarinnar að fjárhagsáætlun félagsmálanefndar fyrir árið 2022. Nefndin leggur til að fjárhagsrammi nefndarinnar fyrir næsta ár verði hækkaður til samræmis við áætlunina. Félagsmálanefnd leggur áherslu á að fjárhagsrammi nefndarinnar endurspegli raunþarfir málaflokksins.

  6. 6. Smáhýsi

    Mál 2101215 Allur ferill málsins

    Félagsmálanefnd samþykkir fyrir sitt leyti að taka málið um umfjöllunar á fundinum með afbrigðum, þar sem málið var ekki á boðaðri dagskrá. Sviðstjóri fjölskyldusviðs leggur fram til kynningar minnisblað um þörf á húsnæðisúrræði fyrir einstaklinga sem þurfa sérúrræði. Félagsmálanefnd lýsti stuðningi við verkefnið og vísar til bæjarráðs til frekari umfjöllunar.