Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirFélagsmálanefnd

Félagsmálanefnd, fundur 148

16. nóvember 2021, kl. 16:15 til 17:15, í Molanum fundarherbergi 1 og 2. Fundargerð ritaði Óskar Sturluson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)

Fundinn sátu

  • Ásmundur Páll Hjaltason, varaformaður
  • Valdimar Másson, aðalmaður
  • Guðfinna Erlín Stefánsdóttir, aðalmaður
  • Hjördís H. Seljan Þóroddsdóttir, formaður

Starfsmenn

  • Laufey Þórðardóttir, embættismaður
  • Óskar Sturluson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 734 liður 12

    Fundargerð félagsmálanefndar frá 16.nóvember, lögð fram til afgreiðslu.

  • Bæjarstjórn, fundur 323 liður 4

    Enginn tók til máls.

    Fundargerð félagsmálanefndar frá 16. nóvember staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Rekstur hjúkrunarheimila 2021

    Mál 2102144 Allur ferill málsins

    Fjármálastjóri kynnir málið fyrir nefndinni og er málið rætt.

    Félagsmálanefnd sem stjórn Hulduhlíðar, heimili aldraðra kt. 660691-2199 og Uppsala, dvalarheimili aldraðra, kt. 440987-2739 samþykkir að afturkalla prókúru umboð fyrir bæði heimilin til Ragnars Sigurðssonar kt. 081280-3559. Ragnar lét af störfum sem framkvæmdastjóri heimilanna 31.8. 2021.

    Félagsmálanefnd sem stjórn Hulduhlíðar, heimili aldraðra kt. 660691-2199 og Uppsala, dvalarheimili aldraðra, kt. 440987-2739, samþykkir að fela Jóni Birni Hákonarsyni, kt. 270173-3149, framkvæmdastjórn heimilanna.

    Jafnframt samþykkir félagsmálanefnd sem stjórn Hulduhlíðar, heimili aldraðra kt. 660691-2199 og Uppsala, dvalarheimili aldraðra, kt. 440987-2739, að veita Jóni Birni Hákonarsyni kt. 270173-3149 og Snorra Styrkárssyni kt. 200258-2829 prókúru fyrir bæði heimilin frá 15. nóvember 2021.

  2. 2. Styrkbeiðni vegna Stígamóta 2022

    Mál 2111046 Allur ferill málsins

    Framlögð er styrkbeiðni Stígamóta fyrir árið 2022 til meðferðar og samþykktar í félagsmálanefnd.

    Samþykkt er að styrkja rekstur Stígamóta um kr. 350.000 á árinu 2022.

  3. 3. Félagslegt leiguhúsnæði

    Mál 2009012 Allur ferill málsins

    Félagsmálanefnd hefur farið yfir mat starfsmanns á þörf fyrir félagslegt leiguhúsnæði. Nefndin ítrekar mikilvægi þess að sveitarfélagið hafi aðgang að íbúðum til útleigu á félagslegum forsendum og tekur undir það mat að ekki sé skilyrði að íbúðirnar séu í eigu sveitarfélagsins ef aðgangur að íbúðum er tryggður. Málinu er vísað til bæjarráðs til frekari umfjöllunar.

  4. 4. Úrræði skv. lögum um málefni aldraðra

    Mál 2111087 Allur ferill málsins

    Nefndin ræðir minnisblað starfsmanns um úrræði fyrir eldri borgara. Frekari umfjöllun um málefni aldraðra er frestað til næsta fundar nefndarinnar.