Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirFélagsmálanefnd

Félagsmálanefnd, fundur 149

11. janúar 2022, kl. 16:15 til 17:15, í fjarfundi vegna COVID19. Fundargerð ritaði Óskar Sturluson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (7)

Fundinn sátu

  • Ásmundur Páll Hjaltason, varaformaður
  • Valdimar Másson, aðalmaður
  • Guðfinna Erlín Stefánsdóttir, aðalmaður
  • Hjördís H. Seljan Þóroddsdóttir, formaður

Starfsmenn

  • Laufey Þórðardóttir, embættismaður
  • Helga Elísabet Beck Guðlaugsdóttir, embættismaður
  • Óskar Sturluson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 739 liður 15

    Fundargerð félagsmálanefndar frá 11.janúar lögð fram til kynningar.

  • Bæjarstjórn, fundur 325 liður 8

    Enginn tók til máls.

    Fundargerð félagsmálanefndar frá 11.janúar, samþykkt með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Jólasjóður 2021

    Mál 2109184 Allur ferill málsins

    Stjórnandi félagsþjónustu og barnaverndar kynnir minnisblað, dags. 9. janúar 2022, þar sem lagt er til að Fjarðabyggð greiði kr. 500.000 í jólasjóð Fjarðabyggðar vegna úthlutunar úr sjóðnum árið 2021. Félagsmálanefnd samþykkir tillöguna.

  2. 2. Félagsmálanefnd 2022

    Mál 2201062 Allur ferill málsins

    Stjórnandi félagsþjónustu og barnaverndar kynnir minnisblað dags. 9. janúar 2022, þar sem settar eru fram tillögur að fundartímum fyrir félagsmálanefnd fram að kosningum í maí 2022. Félagsmálanefnd samþykkir tillögurnar að undanskyldu því að fundur í mars verður þann 1. mars í stað 8. mars.

  3. 3. Lög um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna

    Mál 2012117 Allur ferill málsins

    Sviðsstjóri fjölskyldusviðs kynnir lög um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna.

  4. 4. Úrræði skv. lögum um málefni aldraðra

    Mál 2111087 Allur ferill málsins

    Kynnt fyrir nefndinni eru drögin "Virðing og reisn - samþætt heilbrigðis- og félagsþjónusta fyrir eldra fólk - drög að stefnu um heilbrigðisþjónustu fyrir aldraða, unnið fyrir heilbrigðisráðuneytið í júní 2021".