Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirFélagsmálanefnd

Félagsmálanefnd, fundur 150

8. febrúar 2022, kl. 16:15 til 17:15, í fjarfundi vegna COVID19. Fundargerð ritaði Óskar Sturluson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (5)

Fundinn sátu

  • Hjördís H. Seljan Þóroddsdóttir, formaður
  • Ásmundur Páll Hjaltason, varaformaður
  • Valdimar Másson, aðalmaður

Starfsmenn

  • Laufey Þórðardóttir, embættismaður
  • Óskar Sturluson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 743 liður 16

    Fundargerð félagmálanefndar frá 8. febrúar lögð fram til staðfestingar.

  • Bæjarstjórn, fundur 327 liður 5

    Til máls tók Hjördís Helga Seljan Þóroddsdóttir, Eydís Ásbjörnsdóttir.

    Fundargerð félagsmálanefndar frá 9. febrúar staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Stefnumótun og þarfagreining í málefnum eldri borgara í Fjarðabyggð.

    Mál 2202015 Allur ferill málsins

    Bæjarstjórn Fjarðabyggðar samþykkti á fundi 3.febrúar sl. að farið yrði í stefnumótun og þarfagreiningu í málefnum eldri borgara í Fjarðabyggð. Nefndin felur sviðsstjóra fjölskyldusviðs og stjórnanda félagsþjónustu og barnaverndar að vinna málið áfram og setja fram áætlun um vinnslu málsins fyrir næsta fund nefndarinnar.

  2. 2. Tillaga til þingsályktunar um upplýsingamiðlun um heimilisofbeldismál 20. mál

    Mál 2202065 Allur ferill málsins

    Kynnt er að Fjarðabyggð fékk frá nefndarsviði Alþingi til umsagnar tillögu að þingsályktun um upplýsingamiðlun um heimilisofbeldismál.Félagsmálanefnd telur ekki ástæðu til að senda umsögn vegna tillögunnar.

  3. 3. Starfs- og fjárhagsáætlun félagsmálanefndar 2021

    Mál 2005022 Allur ferill málsins

    Stjórnandi félagsþjónustu og barnaverndar kynnir minnisblað um rekstur málefna félagsmálanefndar á árinu 2021.

  4. 4. Öldungaráð - 4

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð öldungaráðs frá 14.desember lögð fram og samþykkt samhljóða.

    1. 4.1 Viðhaldsmál fasteigna í útleigu hjá félögum eldriborgara2112083
    2. 4.2 Hafnargjöld fyrir eldri borgara2006145
    3. 4.3 Erindisbréf öldungaráðs1805131
    4. 4.4 Umsóknarstyrkur að efla félagsstarf fullorðinna 2021 vegna COVID-192104009
  5. 5. Öldungaráð - 5

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð öldungaráðs frá 24.janúar lögð fram og samþykkt samhljóða.

    1. 5.1 Umsóknarstyrkur að efla félagsstarf fullorðinna 2021 vegna COVID-192104009
    2. 5.2 Viðhaldsmál fasteigna í útleigu hjá félögum eldriborgara2112083