Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirFélagsmálanefnd

Félagsmálanefnd, fundur 151

29. mars 2022, kl. 16:15 til 17:35, í Molanum fundarherbergi 1 og 2. Fundargerð ritaði Óskar Sturluson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (7)

Fundinn sátu

  • Hjördís H. Seljan Þóroddsdóttir, formaður
  • Ásmundur Páll Hjaltason, varaformaður
  • Valdimar Másson, aðalmaður
  • Heiðar Már Antonsson, aðalmaður
  • Guðfinna Erlín Stefánsdóttir, aðalmaður

Starfsmenn

  • Laufey Þórðardóttir, embættismaður
  • Óskar Sturluson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 749 liður 10

    Fundargerð félagsmálanefndar frá 29.mars lögð fram til afgreiðslu.

  • Bæjarstjórn, fundur 330 liður 5

    Fundargerðir félagsmálanefndar teknar til afgreiðslu saman

    Til máls tóku Hjördís Helga Seljan Þóroddsdóttir, Einar Már Sigurðarson, Ragnar Sigurðsson og Jón Björn Hákonarson.

    Fundargerð félagsmálanefndar frá 29. mars samþykkt með 8 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Ókyngreindir búningsklefar og salerni í íþróttamannvirkjum Fjarðabyggðar

    Mál 2202006 Allur ferill málsins

    Bréf Jafnréttisteymis og íþróttakennara Verkmenntaskóla Austurlands er varðar íþróttamannvirki í Neskaupstað er tekið til umfjöllunar. Félagsmálanefnd tekur undir mikilvægi erindisins.

  2. 2. 418. mál til umsagnar um tillögu til þingsályktunar um mótun stefnu í aðdraganda aðgerðaráætlunar í heilbrigðisþjónustu við aldraða til ársins 2030

    Mál 2203142 Allur ferill málsins

    Kynnt er umsagnarbeiðni nefndarsviðs Alþingis, 418. mál. Að mati félagsmálanefndar er ekki talin ástæða til að senda umsögn vegna þingsályktunartillögunarinnar.

  3. 3. Stefnumótun og þarfagreining í málefnum eldri borgara í Fjarðabyggð.

    Mál 2202015 Allur ferill málsins

    Sviðsstjóri fjölskyldusviðs og stjórnandi félagsþjónustu og barnaverndar kynna minnisblað um stefnumótun og þarfagreiningu í málefnum eldri borgara í Fjarðabyggð. Félagsmálanefnd vísar tillögunum sem fram koma í minnisblaðinu til umfjöllunar í öldungaráði.

  4. 4. Erindi til sveitarfélaga vegna móttöku flóttafólks frá Úkraínu

    Mál 2203078 Allur ferill málsins

    Erindi Félags- og vinnumarkaðsráðuneytisins er kynnt félagsmálanefnd. Nefndin tekur vel í erindið.

  5. 5. Flóttafólk frá Úkraínu

    Mál 2203124 Allur ferill málsins

    Þamm 9. mars sl. barst erindi frá félags- og vinnumarkaðsráðuneytinu um getu sveitarfélaga til að taka á móti flóttafólki frá Úkraínu. Erindinu var vísað til fræðslu- og félagsmálanefnda og til úrlausnar á fjölskyldusviði þann 17. mars sl.

    Sviðsstjóri fjölskyldusviðs kynnir minnisblað varðandi mögulega aðstoð við flottafólk frá Úkraínu. Félagsmálanefnd tekur undir það sem fram kemur í minnisblaðinu.