Bæjarráð, fundur 749
4. apríl 2022, kl. 08:30 til 10:15, í Molanum fundarherbergi 1 og 2. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (7)
Fundinn sátu
- Sigurður Ólafsson, formaður
- Pálína Margeirsdóttir, varaformaður
- Ragnar Sigurðsson, aðalmaður
- Rúnar Már Gunnarsson, áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Jón Björn Hákonarson, bæjarstjóri
- Gunnar Jónsson, embættismaður
- Snorri Styrkársson, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarstjórn, fundur 330 liður 2
Til máls tóku Jón Björn Hákonarson og Eydís Ásbjörnsdóttir
Bæjarstjórn áréttar fyrri afstöðu sína að sveitarfélagið er tilbúið að taka á móti flóttafólki en fyrir liggur að húsnæði í sveitarfélaginu er af skornum skammti. Fjölskyldusviði hefur verið falið að vera í sambandi við stjórnvöld um hvernig sveitarfélagið getur komið að málum.
Fundargerð bæjarráðs frá 4.apríl samþykkt með 8 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Svæðisskipulag Austurlands
Mál 2102084 Allur ferill málsins
Kynning á svæðisskipulagi Austurlands. Eydís Ásbjörnsdóttir sat þennan lið fundarins og kynnti skipulagið sem er nú í umsagnarferli fram til 21. apríl 2022.
Vísað til kynningar í nefndum sveitarfélagsins. Bæjarstjóra, bæjarritara og sviðsstjóra umhverfis- og skipulagssviðs falið að leggja umsögn fyrir bæjarráð.
-
2. Kaup á slökkvibifreið
Mál 2201128 Allur ferill málsins
Lagt fram minnisblað er varðar útboð á vegum Ríkiskaupa vegna kaupa á slökkvibifreið. Slökkviliðsstjóri fór yfir niðurstöðu útboðs á slökkvibifreiðum.
Bæjarráð samþykkir að gengið verði að tilboði um kaup á slökkvibifreið í gegnum Ríkiskaup sbr. minnisblað. Slökkviliðsstjóra falin vinnsla málsins.
-
3. Fjárrhagsáætlun 2022 - viðauki 1
Mál 2204018 Allur ferill málsins
Lögð fram tillaga að viðauka við fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar fyrir árið 2022 vegna nýrra kjarasamninga og samþykkta bæjarstjórnar í starfsmannamálum.
Bæjarráð samþykkir viðaukann fyrir sitt leyti og vísar honum til afgreiðslu bæjarstjórnar.
-
4. Römpum upp Ísland
Mál 2203163 Allur ferill málsins
Lagt fram erindi er varðar verkefnið Römpum upp Ísland.
Bæjarráð fagnar framtakinu og vísar erindi til aðgengisfulltrúa sveitarfélagsins til vinnslu.
-
5. Sveitarstjórnarkosningar 2022
Mál 2203141 Allur ferill málsins
Framlögð tillaga yfirkjörstjórnar í Fjarðabyggð vegna sveitarstjórnarkosninga 2022 sem haldnar verða 14. maí nk.
Kjördeildir verði á Eskifirði, Fáskrúðsfirði, Mjóafirði, Norðfirði, Reyðarfirði, Stöðvarfirði og í Breiðdal. Kjörstaðir verði í Tónlistarmiðstöðinni á Eskifirði, í Skólamiðstöð Fáskrúðsfjarðar, Sólbrekku í Mjóafirði, Nesskóla, safnaðarheimili Reyðarfjarðarkirkju, húsnæði grunnskólans á Stöðvarfirði og húsnæði grunnskólans í Breiðdal. Einstaklingar búsettir erlendis verði hafðir með kjördeildinni á Eskifirði. Opnunartími kjörstaða verði frá kl. 09:00 til 22:00 nema hvað reynt verði að loka í Mjóafirði á sama hátt og venjulega, þ.e. kl. 14:00.
Bæjarráð samþykkir tillögu yfirkjörstjórnar og vísar til staðfestingu bæjarstjórnar.
-
6. Frumvarp til laga um fjarskipti, 461. mál
Mál 2203188 Allur ferill málsins
Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis sendir til umsagnar frumvarp til laga um fjarskipti, 461. mál. Umsögn berist eigi síðar en 13. apríl.
Lagt fram til kynningar.
-
7. Aðalfundur SSA 2022
Mál 2204012 Allur ferill málsins
Aðalfundur Sambands sveitarfélaga á Austurlandi (SSA) verður haldinn í Tónlistarmiðstöð Austurlands á Eskifirði þann 29. apríl nk. og hefst hann kl. 10:00. Vakin er athygli á því að síðar þennan sama dag mun ársfundur Austurbrúar fara fram sem og hátíðarfundur Austurbrúar í tilefni af 10 ára afmæli stofnunarinnar.
Fulltrúar Fjarðabyggðar á aðalfundi sambandsins eru aðalmenn bæjarstjórnar. Forseti bæjarstjórnar fer með umboð Fjarðabyggðar á ársfundi Austurbrúar.
-
8. Flóttafólk frá Úkraínu
Mál 2203124 Allur ferill málsins
Fræðslunefnd og félagsmálanefnd hafa fjallað um tillögu fjölskyldusviðs sem lögð var fyrir nefndirnar en í því kemur fram að fjölskyldusvið Fjarðabyggðar er reiðubúið að sinna þeim hluta verkefnisins sem snýr að sviðinu, ef bæjarstjórn ákveður að bjóða fram aðstoð sveitarfélagsins, með fyrirvara um undirbúning og mönnun.
Bæjarráð tekur undir með nefndum og felur fjölskyldusviði umhald málsins.
-
9. Fundargerðir Samband Íslenskra sveitarfélaga 2022
Mál 2201106 Allur ferill málsins
Fundargerð stjórnar sambandsins frá 25.mars lögð fram til kynningar.
-
10. Félagsmálanefnd - 151
Fundargerð félagsmálanefndar frá 29.mars lögð fram til afgreiðslu.
- 10.1 Ókyngreindir búningsklefar og salerni í íþróttamannvirkjum Fjarðabyggðar2202006
- 10.2 418. mál til umsagnar um tillögu til þingsályktunar um mótun stefnu í aðdraganda aðgerðaráætlunar í heilbrigðisþjónustu við aldraða til ársins 20302203142
- 10.3 Stefnumótun og þarfagreining í málefnum eldri borgara í Fjarðabyggð.2202015
- 10.4 Erindi til sveitarfélaga vegna móttöku flóttafólks frá Úkraínu2203078
- 10.5 Flóttafólk frá Úkraínu2203124