Bæjarráð, fundur 748
31. mars 2022, kl. 15:00 til 15:30, í Molanum fundarherbergi 3. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (7)
Fundinn sátu
- Sigurður Ólafsson, formaður
- Pálína Margeirsdóttir, varaformaður
- Ragnar Sigurðsson, aðalmaður
- Rúnar Már Gunnarsson, áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Jón Björn Hákonarson, bæjarstjóri
- Gunnar Jónsson, embættismaður
- Snorri Styrkársson, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarstjórn, fundur 329 liður 5
Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.
Fundargerð bæjarráðs frá 31. mars staðfest með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Ársreikningur Fjarðabyggðar árið 2021
Mál 2202017 Allur ferill málsins
Bæjarráð undirritaði ársreikning sveitarfélagsins og stofnana vegna ársins 2021, fyrir fyrri umræðu í bæjarstjórn og vísar honum til fyrri umræðu í bæjarstjórn í dag.
-
2. Nefndaskipan í Fjarðabyggð 2018 - 2022
Mál 1806029 Allur ferill málsins
Framlögð tillaga um breytta skipan aðalmanns í undirkjörstjórn.
Hjörtur Elí Steindórsson tekur sæti aðalmanns í undirkjörstjórn á Reyðarfirði í stað Lars Olsen.