Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 747

28. mars 2022, kl. 08:30 til 11:40, í Molanum fundarherbergi 3. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (7)

Fundinn sátu

  • Sigurður Ólafsson, formaður
  • Pálína Margeirsdóttir, varaformaður
  • Ragnar Sigurðsson, aðalmaður
  • Rúnar Már Gunnarsson, áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Jón Björn Hákonarson, bæjarstjóri
  • Gunnar Jónsson, embættismaður
  • Snorri Styrkársson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarstjórn, fundur 329 liður 4

    Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.

    Fundargerð bæjarráðs frá 28. mars staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Ársreikningur Fjarðabyggðar árið 2021

    Mál 2202017 Allur ferill málsins

    Framhald frá síðasta fundi bæjarráðs.

    Endurskoðendurnir Magnús Jónsson og Sigurjón Örn Arnarsson frá KPMG fóru yfir stöðu á vinnslu ársreiknings Fjarðabyggðar og stofnana fyrir árið 2021.

    Ársreikningur verður lagður fram til fyrri umræðu í bæjarstjórn 31. mars nk.

  2. 2. Fundur með forstjóra Alcoa og upplýsingafulltrúa fyrirtækisins

    Mál 2203087 Allur ferill málsins

    Þennan lið fundarins sátu forstjóri Alcoa Fjarðaáls og upplýsingafulltrúi fyrirtækisins og fóru yfir málefni fyrirtækisins.

  3. 3. Reglur um styrki tl stjórnmálaflokka

    Mál 1805147 Allur ferill málsins

    Framhald umræðu um afnot stjórnmálaflokka af húsnæði í eigu sveitarfélagsins en máli var vísað frá bæjarráði til bæjarstjóra og bæjarritara til uppfærslu á reglum sveitarfélagsins sem fjalla um framlög til stjórnmálasamtaka sem bjóða fram til sveitarstjórnarkosninga.

    Bæjarráð felur bæjarstjóra að uppfæra 2. gr.

    Reglunum er vísað til staðfestingar bæjarstjórnar.

  4. 4. Sveitarstjórnarkosningar 2022

    Mál 2203141 Allur ferill málsins

    Umræða um fyrirkomulag sveitarstjórnarkosninga 2022 og utankjörfundaratkvæðagreiðslu.

    Bæjarstjóra falið að ræða við sýslumann um fyrirkomulag utankjörfundaratkvæðagreiðslunnar.

  5. 5. Umsókn um styrk vegna fornleifarannsókna í Stöðvarfirði 2022

    Mál 2108149 Allur ferill málsins

    Framlögð beiðni Félags áhugafólks um fornleifarannsóknir á Stöðvarfirði, um aukið fjármagn á árinu 2022.

    Bæjarráð felur bæjarstjóra að ræða við bréfritara og leita leiða til að tryggja verkefninu aukið fjármagn frá ríki. Málið tekið fyrir að nýju í bæjarráði.

  6. 6. Fjölþætt heilsuefling fyrir eldri aldurshópa

    Mál 2004159 Allur ferill málsins

    Vísað frá íþrótta- og tómstundanefnd til afgreiðslu bæjarráðs minnisblaði um verkefnið Fjölþætt heilsuefling fyrir eldri borgara sem Janus heilsuefling slf. býður upp á. Lögð fram drög að samningi frá Janusi heilsuefling slf.

    Bæjarráð samþykkir samninginn og felur bæjarstjóra undirritun hans.

  7. 7. Umsögn um tillögu til þingsályktunar um eignarhald í laxeldi, 419. mál.

    Mál 2203144 Allur ferill málsins

    Atvinnuveganefnd Alþingis sendir til umsagnar tillögu til þingsályktunar um eignarhald í laxeldi, 419. mál. Umsagnarfrestur er til 1. apríl.

    Vísað til atvinnu- og þróunarstjóra til skoðunar.

  8. 9. Styrktarsjóður EBÍ 2022

    Mál 2203137 Allur ferill málsins

    Framlagt bréf Eignarhaldsfélags Brunabótafélags íslands þar sem vakin er athygli á Styrktarsjóði EBÍ en umsóknarfrestur í sjóðinn er til loka apríl.

    Vísað til kynningar hjá sviðsstjórum.

  9. 10. 730 Búðarmelur 5a-b - Umsókn um lóð

    Mál 2203077 Allur ferill málsins

    Vísað frá eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd til afgreiðslu bæjarráðs lóðarumsókn þar sem sótt er um lóðina við Búðarmel 5a-b undir parhús.

    Bæjarráð samþykkir úthlutun lóðarinnar.

  10. 11. Nefndaskipan Sjálfstæðisflokks 2018 - 2022

    Mál 1806146 Allur ferill málsins

    Jens Garðar Helgason bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, hefur beðist lausnar frá störfum í bæjarstjórn Fjarðabyggðar.

  11. 12. Nefndaskipan Fjarðalista 2018 - 2022

    Mál 1908104 Allur ferill málsins

    Magni Þór Harðarson hefur óskað eftir leyfi sem varabæjarfulltrúi og frá öllum nefndarstörfum, þ.m.t. formennsku í menningar- og nýsköpunarnefnd, til loka kjörtímabilsins.

    Birta Sæmundsdóttir mun taka við formennsku í menningar- og nýsköpunarnefnd og Hjördís Helga Seljan Þóroddsdóttir tekur sæti varamanns. Sigurður Ólafsson tekur við formennsku í starfshópi um Íslenska Stríðsárasafnið og Birta Sæmundsdóttir tekur einnig sæti í starfshópnum.

  12. 13. Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 308

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar frá 21. mars lögð fram til afgreiðslu.

    1. 13.1 Umhverfis- og loftlagsstefna Fjb. 2020-2040 - innleiðing2106148
    2. 13.2 735 AT-200 - Deiliskipulag, athafnasvæðis2201189
    3. 13.3 730 Búðarmelur 5a-b - Umsókn um lóð2203077
    4. 13.4 740 Naustahvammur 54 - Umsókn um lóð2203063
    5. 13.5 715 Stefánsbúð - Umsókn um byggingarleyfi, breytt notkun, sumarhús2201142
    6. 13.6 730 Brekkugerði 1 - Umsókn um byggingarleyfi, einbýlishús2202186
    7. 13.7 730 Búðarmelur 9a-c - Umsókn um byggingarleyfi, raðhús2203057
    8. 13.8 740 Miðgarður 16A - Umsókn um byggingaráform, stækkun2203086
    9. 13.9 740 - Kirkjubólseyri 10 - Umsókn um byggingarheimild, hesthús2203064
    10. 13.10 735 Hátún 10 - Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi2203065
    11. 13.11 Viðgerð og endurbætur á Valhöll2203079
    12. 13.12 Nesskóli - Tónskóli - viðhaldsverkefni2203109
    13. 13.13 Dalborg, hönnun á viðbyggingu2002039
    14. 13.14 730 Sunnugerði 22 - Hæðarmunur á lóðarmörkum2203093
    15. 13.15 Frumvarp til laga um eignarráð og nýtingu fasteigna (óskipt sameign, landamerki o.fl.), 16. mál.2203081
  13. 14. Fræðslunefnd - 109

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð fræðslunefndar frá 23. mars lögð fram til afgreiðslu.

    1. 14.1 Starfsáætlanir og skólanámskrár 2021-20222110117
    2. 14.2 Kennslutímamagn grunnskóla 2022-20232203002
    3. 14.3 Flóttafólk frá Úkraínu2203124
    4. 14.4 Erindi til fræðslunefndar2202166
  14. 15. Íþrótta- og tómstundanefnd - 97

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð íþrótta- og tómstundanefndar frá 21. mars lögð fram til afgreiðslu.

    1. 15.1 Fjölþætt heilsuefling fyrir eldri aldurshópa
    2. 15.2 Gjaldskrá og opnunartími íþróttahússins í Breiðdal
    3. 15.3 Akstur á skíðasvæðið í Oddsskarði
    4. 15.4 Sportabler kostnaður
    5. 15.5 Félagslundur