Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirEigna-, skipulags- og umhverfisnefnd

Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd, fundur 308

21. mars 2022, kl. 16:00 til 17:10, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Valur Sveinsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (7)

Fundinn sátu

  • Eydís Ásbjörnsdóttir, formaður
  • Ívar Dan Arnarson, varaformaður
  • Kamma Dögg Gísladóttir, aðalmaður
  • Dýrunn Pála Skaftadóttir, aðalmaður
  • Esther Ösp Gunnarsdóttir, aðalmaður
  • Árni Björn Guðmundarson, áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Valur Sveinsson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 747 liður 13

    Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar frá 21. mars lögð fram til afgreiðslu.

  • Bæjarstjórn, fundur 329 liður 7

    Fundargerðir eigna- skipulags- og umhverfisnefndar teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.

    Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar frá 21. mars staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Umhverfis- og loftlagsstefna Fjb. 2020-2040 - innleiðing

    Mál 2106148 Allur ferill málsins

    Í umhverfis- og loftlagsstefnu Fjarðabyggðar kemur meðal annars fram að stuðlað verði að endurnýtingu með því hvetja til reksturs nytjamarkaða. Nytjamarkaðir geta dregið úr verðmætasóun og urðun ásamt því að vera atvinnuskapandi. Áhugasamir einstaklingar hafa verið í sambandi við sveitarfélagið vegna uppbyggingar nytjamarkaðar í Fjarðabyggð.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir í framhaldi af íbúafundi sem haldinn var 28. febrúar síðastliðinn að auglýst verði eftir áhugasömum aðilum um aðkomu að uppbyggingu nytjamarkaðar.

  2. 2. 735 AT-200 - Deiliskipulag, athafnasvæðis

    Mál 2201189 Allur ferill málsins

    Lögð fram til umræðu fyrstu drög að deiliskipulagi athafnasvæðis innan við byggðina á Eskifirði.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd felur sviðsstjóra umhverfis- og skipulagssviðs að vinna áfram að deiliskipulaginu og leggja fyrir nefndina að nýju.

  3. 3. 730 Búðarmelur 5a-b - Umsókn um lóð

    Mál 2203077 Allur ferill málsins

    Lögð fram lóðarumsókn Önnu Berg Samúelsdóttur, dagsett 10. mars 2022, þar sem sótt er um lóðina við Búðarmel 5a-b undir parhús.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir, fyrir sitt leyti, að úthluta lóðinni og vísar umsókninni til bæjarráðs til endanlegrar afgreiðslu.

  4. 4. 740 Naustahvammur 54 - Umsókn um lóð

    Mál 2203063 Allur ferill málsins

    Lögð fram lóðarumsókn Multitask ehf, dagsett 9. mars 2022, þar sem sótt er um hluta af lóðinni við Naustahvamm 54 á Norðfirði undir atvinnuhúsnæði. Sótt er um 800 m2 af lóðinni.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd frestar afgreiðslu. Nefndin felur sviðsstjóra umhverfis- og skipulagssviðs að ræða við umsækjanda.

  5. 5. 715 Stefánsbúð - Umsókn um byggingarleyfi, breytt notkun, sumarhús

    Mál 2201142 Allur ferill málsins

    Lögð fram byggingaráformaumsókn Guðrúnar Margrétar Sólonsdóttur. dagsett 24. janúar 2022, þar sem sótt er um leyfi til að breyta notkun og endurgera Stefánsbúð í Mjóafirði. Breyta á notkun hússins í frístundahús. Samþykki nágranna liggur fyrir.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir byggingaráformin.

  6. 6. 730 Brekkugerði 1 - Umsókn um byggingarleyfi, einbýlishús

    Mál 2202186 Allur ferill málsins

    Lögð fram byggingarleyfisumsókn Patreks Trostanss Stefánssonar. dagsett 23. febrúar 2022, þar sem sótt er um leyfi til að byggja 241 m2 og 824,2 m3 einbýlishús á lóð hans að Brekkugerði 16 á Reyðarfirði. Jafnframt er sótt um stækkun lóðar um 5 m til austurs.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir byggingarleyfisumsóknina. Nefndin samþykkir jafnframt stækkun lóðarinnar í samræmi við 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

  7. 7. 730 Búðarmelur 9a-c - Umsókn um byggingarleyfi, raðhús

    Mál 2203057 Allur ferill málsins

    Lögð fram byggingarleyfisumsókn Hobarts ehf. dagsett 8. mars 2022, þar sem sótt er um leyfi til að byggja 291,7 m2 og 991,2 m3 þriggja íbúða raðhús á lóð fyrirtækisins að Búðarmel 9 a-c á Reyðarfirði.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir umsóknina.

  8. 8. 740 Miðgarður 16A - Umsókn um byggingaráform, stækkun

    Mál 2203086 Allur ferill málsins

    Lögð fram byggingaráformaumsókn Gísla Gunnarssonar. dagsett 13. mars 2022, þar sem sótt er um leyfi til að byggja við og stækka bílskúr hans að Miðgarði 16a á Norðfirði.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir að grenndarkynna byggingaráformin. Grenndarkynning nái til Miðgarðs 16 og 20.

  9. 9. 740 - Kirkjubólseyri 10 - Umsókn um byggingarheimild, hesthús

    Mál 2203064 Allur ferill málsins

    Lögð fram byggingaráformaumsókn Margrétar Lindu Erlingsdóttur. dagsett 9. mars 2022, þar sem sótt er um leyfi til að byggja 200 m2 og 781,1 m3 hesthús á lóð hennar við Kirkjubólseyri 10 í Norðirði.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir byggingaráformin.

  10. 10. 735 Hátún 10 - Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi

    Mál 2203065 Allur ferill málsins

    Lögð fram umsókn Margrétar G. Beck, dagsett 9. mars 2022, þar sem óskað er eftir endurnýjun lóðarleigusamnings lóðar hennar að Hátúni 10 á Eskifirði. Lögð fram tillaga að lóðarblaði. Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir að lóðarleigusamningur verði endurnýjaður.

  11. 11. Viðgerð og endurbætur á Valhöll

    Mál 2203079 Allur ferill málsins

    Lagt fram til kynningar erindi frá Kvikmyndasýningarfélag Austurlands og Vinum Valhallar á Eskifirði varðandi viðhald á Valhöll Eskifirði í tengslum við fjáröflun vegna kaupa á sýningarkerfi. Bæjarráð hefur vísað erindinu til framkvæmdasviðs til úrvinnslu en á áætlun ársins er gert ráð fyrir viðhaldi á húsnæðinu. Jafnframt vísað til kynningar í eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd.

  12. 12. Nesskóli - Tónskóli - viðhaldsverkefni

    Mál 2203109 Allur ferill málsins

    Lögð fram skýrsla Eflu vegna innivistar Tónskóla Norðfjarðar, dagsett 28. febrúar 2022 og yfirlit sviðsstjóra umhverfissviðs yfir viðhaldsmál tónskólans, dagsett 18. mars 2022. Í skýrslu Eflu kemur fram að mygla hafi fundist í Tónskólanum.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd felur sviðsstjóra framkvæmdasviðs að leggja fram aðgerðar- og kostnaðaráætlun um þær aðgerðir sem framundan eru.

  13. 13. Dalborg, hönnun á viðbyggingu

    Mál 2002039 Allur ferill málsins

    Lögð fram til kynningar samantekt sviðstjóra framkvæmdasviðs vegna tilboða í viðbyggingu við Leikskólann Dalborg, dagsett 18. mars 2022. Bæjarráð hefur samþykkt að ganga til samninga við Launafl á grundvelli tillagna sem koma fram í samantekt og falið bæjarstjóra undirritun verksamnings.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd fagnar því að búið sé að taka tilboði í verkið.

  14. 14. 730 Sunnugerði 22 - Hæðarmunur á lóðarmörkum

    Mál 2203093 Allur ferill málsins

    Lagt fram erindi Kára Elvars Arnþórssonar, dagsett 15. mars 2022, þar sem óskað er eftir að Fjarðabyggð komi að kostnaði við frágang á lóðarmörkum vegna hæðarmunar á lóðunum við Sunnugerði 20 og 22 á Reyðarfirði. Lóðin við Sunnugerði 22 er óúthlutuð.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd getur ekki samþykkt þátttöku í kostnaði vegna framkvæmda á lóðarmörkum. Nefndin felur sviðsstóra umhverfis- og skipulagssviðs að ræða við umsækjanda.

  15. 15. Frumvarp til laga um eignarráð og nýtingu fasteigna (óskipt sameign, landamerki o.fl.), 16. mál.

    Mál 2203081 Allur ferill málsins

    Lögð fram til kynningar beiðni allsherjar- og menntamálanefnd Alþingis um umsögn um frumvarp til laga um eignarráð og nýtingu fasteigna (óskipt sameign, landamerki o.fl.), 16. mál.