NefndirEigna-, skipulags- og umhverfisnefnd
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd, fundur 309
4. apríl 2022, kl. 16:00 til 17:55, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Valur Sveinsson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (7)
Fundinn sátu
- Eydís Ásbjörnsdóttir, formaður
- Ívar Dan Arnarson, varaformaður
- Kristjana Guðmundsdóttir, varamaður
- Dýrunn Pála Skaftadóttir, aðalmaður
- Esther Ösp Gunnarsdóttir, aðalmaður
- Árni Björn Guðmundarson, áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Valur Sveinsson, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarstjórn, fundur 330 liður 3
Samþykkt var í upphafi fundar að fundargerð yrði tekin á dagskrá með afbrigðum.
Enginn tók til máls.
Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar frá 4.apríl samþykkt með 8 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Refa- og minkaveiði 2021-2022
Mál 2201007 Allur ferill málsins
Lagt fram minnisblað umhverfisstýru, dags. 31. mars 2022, er varðar samninga refa- og minkaveiðifólks í Fjarðabyggð.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir óbreytt fyrirkomulag er varðar samninga.
-
2. Svæðisskipulagsnefnd 2021
Mál 2102084 Allur ferill málsins
Formaður kynnir tillögu að svæðisskipulagi Austurlands og umhverfismatsskýrsla hennar hefur verið birt til kynningar og umsagnar í samráðsgátt stjórnvalda og á vef Austurbrúar og Fjarðabyggðar og verður aðgengileg þar til og með 21. apríl næstkomandi. Kynningin er á grundvelli 2. mgr. 23. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 13. og 14. gr. laga um umhverfismat framkvæmda og áætlana nr. 111/2021.
-
3. Aðalskipulags Fljótsdalshéraðs 2008-2028 fyrir ferðaþjónustu- og áfangastaðinn Stuðlagil á Jökuldal
Mál 2204010 Allur ferill málsins
Lögð fram beiðni Múlaþings um umsögn við vinnslutillögu vegna rammahluta Aðalskipulags Fljótsdalshéraðs 2008-2028 fyrir ferðaþjónustu- og áfangastaðinn Stuðlagil á Jökuldal.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd gerir ekki athugasemdir við tillögurnar.
-
4. 735 - Deiliskipulag, Dalur athafnasvæði
Mál 2201189 Allur ferill málsins
Lögð fram tillaga að deiliskipulagi Dals, athafnasvæðis. Skipulagssvæðið er um 4,8 ha að stærð og er staðsett inn í dal á Eskifirði eða rétt sunnan megin við gangnamunna Norðfjarðarganga og austan megin Norðfjarðarvegar. Aðkoma að skipulagssvæðinu er frá Dalbraut. Á svæðinu er gert ráð fyrir 23. lóðum undir athafnarstarfsemi og léttan iðnað.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir fyrir sitt leyti að auglýsa tillöguna sbr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Nefndin samþykkir jafnframt að breyta deiliskipulagi Norðfjarðarvegar og nágrennis að gangnamunna á Eskifirði þannig að hluti þess sem nær inn á skipulagssvæði Dals, athafnasvæðis verði felldur úr gildi. Endanlegri afgreiðslu er vísað til bæjarstjórnar.
-
5. Fyrirspurn um samræmi við deiliskipulag
Mál 2203139 Allur ferill málsins
Lögð fram fyrirspurn Síldarvinnslunnar um deiliskipulag.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd felur sviðsstjóra að svara erindinu í samræmi við umræðu á fundinum.
-
6. 735 Árdalur 17 - Umsókn um lóð
Mál 2203173 Allur ferill málsins
Lögð fram lóðarumsókn Fjarðabyggðar fh. Brákar hses, dagsett 30. mars 2022, þar sem sótt er um lóðina við Árdal 17 á Eskifirði undir parhús.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir, fyrir sitt leyti, að úthluta lóðinni og vísar umsókninni til bæjarráðs til endanlegrar afgreiðslu.
-
7. 740 Hafnarbraut 40 - Umsókn um lóð
Mál 2203174 Allur ferill málsins
Lögð fram lóðarumsókn Fjarðabyggðar fh. Brákar hses, dagsett 30. mars 2022, þar sem sótt er um lóðina við Hafnarbraut 40 á Norðfirði undir fjögurra íbúða fjölbýlishús á tveimur hæðum.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir, fyrir sitt leyti, að úthluta lóðinni og vísar umsókninni til bæjarráðs til endanlegrar afgreiðslu.
-
8. Umsókn um kaup á landi í eigu sveitarfélagsins
Mál 2203197 Allur ferill málsins
Lagt fram ódagsett erindi Shenouda Hanna Kamal þar sem óskað er eftir kaupum á húsnæðinu að Teigagerði í Reyðarfirði ásamt kaupum eða leigu á um 500 m2 landi undir húsnæðið. Áætlað er að gera húsnæðið upp og nýta sem geymslu.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd getur ekki samþykkt sölu hússins þar sem gert er ráð fyrir að Skógræktarfélag Reyðarfjarðar hafi þar aðstöðu.