Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirEigna-, skipulags- og umhverfisnefnd

Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd, fundur 310

25. apríl 2022, kl. 16:30 til 18:50, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Valur Sveinsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)

Fundinn sátu

  • Eydís Ásbjörnsdóttir, formaður
  • Elías Jónsson, varamaður
  • Kristjana Guðmundsdóttir, varamaður
  • Dýrunn Pála Skaftadóttir, aðalmaður
  • Esther Ösp Gunnarsdóttir, aðalmaður

Starfsmenn

  • Valur Sveinsson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 752 liður 11

    Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar frá 25. apríl, lögð fram til afgreiðslu.

  • Bæjarstjórn, fundur 331 liður 4

    Fundargerðir eigna- skipulags- og umhverfisnefndar teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.

    Enginn tók til máls.

    Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefnd frá 25. apríl utan dagskrárliða 2, 3, og 11 staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Vorbæklingur 2022

    Mál 2204081 Allur ferill málsins

    Lagt fram minnisblað umhverfisstýru um vorbækling Fjarðabyggðar 2022, dagsett 20. apríl 2022. Lagt er til að vorbæklingurinn verði áfram á rafrænu formi í anda umhverfis- og loftlagsstefnu Fjarðabyggðar. Stefnt er að útgáfu vorbæklingsins 11. maí.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd felur umhverfisstýru að vinna áfram að gerð vorbæklings í samræmi við umræðu á fundinum.

  2. 2. 730 Seljateigur - Framkvæmdaleyfi, skógrækt

    Mál 2204089 Allur ferill málsins

    Lögð fram framkvæmdaleyfisumsókn Þóroddar Helgasonar þar sem gert er ráð fyrir 129 ha skógræktarsvæði í landi Seljateigs í Reyðarfirði. Lagður fram samningur Skógræktarinnar um þátttöku í nytjaskógrækt á lögbýlinu Seljateig ásamt afmörkun samningssvæðis.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir umsóknina og útgáfu framkvæmdaleyfis þegar öll tilskilin gögn liggja fyrir.

  3. 3. 730 Seljateigshjáleiga - Framkvæmdaleyfi, skógrækt

    Mál 2203192 Allur ferill málsins

    Lögð fram framkvæmdaleyfisumsókn Sigurbjörns Marinóssonar þar sem gert er ráð fyrir 162 ha skógræktarsvæði í landi Seljateigshjáleigu í Reyðarfirði. Lagður fram samningur Skógræktarinnar um þátttöku í nytjaskógrækt á lögbýlinu Seljateigshjáleigu ásamt afmörkun samningssvæðis.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir umsóknina og útgáfu framkvæmdaleyfis þegar öll tilskilin gögn liggja fyrir.

  4. 4. 755 Sævarendi 2 - Beiðni um stækkun lóðar og framkvæmdaleyfi

    Mál 2204117 Allur ferill málsins

    Lögð fram umsókn Malbikunarstöðvar Austurlands ehf um stækkun lóðar fyrirtækisins að Sævarenda 2 á Stöðvarfirði ásamt beiðni um framkvæmdaleyfi vegna stækkunarinnar. Gert er ráð fyrir að lóðin verði sléttuð og malbikuð fyrir þjónustumiðstöð fiskeldis vegna samsetningar og viðhalds fiskeldiskvía með vegtengingu við smábátahöfn og hafnarsvæði.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir, fyrir sitt leyti, stækkun lóðarinnar og vísar umsókninni til bæjarráðs til endanlegrar afgreiðslu. Nefndin mun taka framkvæmdarleyfisumsóknina fyrir að fenginni afgreiðslu bæjarráðs á stækkun lóðar.

  5. 5. 740 Miðgarður 16A - Umsókn um byggingaráform, stækkun

    Mál 2203086 Allur ferill málsins

    Lögð fram að nýju eftir grenndarkynningu byggingarheimildarumsókn Gísla Gunnarssonar, dagsett 14. mars 2022, þar sem sótt er um leyfi til byggja við og stækka bílskúr hans að Miðgarði 16A á Norðfirði. Engar athugasemdir bárust vegna grenndarkynningar.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir umsóknina.

  6. 6. 735 Árdalur 2-18 - Umsókn um byggingarleyfi raðhús

    Mál 2109213 Allur ferill málsins

    Lögð fram umsókn ABC Bygginga ehf um uppsetningu vinnubúða á byggingarstað við Árdal 2-18 þar sem fyrirtækið byggir nú níu íbúða raðhús. Gert er ráð fyrir að vinnubúðir verði settar upp um miðjan maí og teknar niður í byrjun október. Gert er ráð fyrir svefnaðstöðu fyrir 12 manns, snyrtingum og baðaðstöðu, eldhúsi, setustofu og skrifstofu.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir tímabundna uppsetningu vinnubúða á lóðinni að fenginni jákvæðri umsögn slökkviliðs, HAUST og Vinnueftirlits.

  7. 7. 730 Austurvegur 24 - Beiðni um endurnýjun á lóðarleigusamningi

    Mál 2204108 Allur ferill málsins

    Lagt fram bréf Lagaskila lögmannstofu, dagsett 13. apríl 2022, þar sem óskað er eftir endurnýjun lóðarleigusamnings Bakkagerðis ehf um lóð fyrirtækisins að Austurvegi 24 á Reyðarfirði. Lagt fram deiliskipulag svæðisins.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd frestar afgreiðslu.

  8. 8. 735 Svínaskálahlíð 7 - umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi

    Mál 2204035 Allur ferill málsins

    Lögð fram umsókn Katrínar Guðmundsdóttur, dagsett 5. apríl 2022, þar sem óskað er eftir endurnýjun lóðarleigusamnings lóðar hennar að Svínaskálahlíð 7 á Eskifirði. Lögð fram tillaga að lóðarblaði.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir að lóðarleigusamningur verði endurnýjaður.

  9. 9. 740 Tröllavegur 4 - Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi

    Mál 2203115 Allur ferill málsins

    Lögð fram umsókn Gunnars Þorsteinssonar, dagsett 20. mars 2022, þar sem óskað er eftir endurnýjun lóðarleigusamnings lóðar hans að Tröllavegi 4 á Norðfirði. Lögð fram tillaga að lóðarblaði.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir að lóðarleigusamningur verði endurnýjaður.

  10. 10. 740 Kirkjumelur - umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi

    Mál 2204028 Allur ferill málsins

    Lögð fram umsókn Fjarðabyggðar, dagsett 4. apríl 2022, þar sem óskað er eftir endurnýjun lóðarleigusamnings sveitarfélagsins við Kirkjumel í Norðfjarðarsveit. Lögð fram tillaga að lóðarblaði.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir að lóðarleigusamningur verði endurnýjaður.

  11. 11. 730 Seljateigur, stofnun lands

    Mál 1909011 Allur ferill málsins

    Lögð fram tillaga að samningi um landskipti Seljateigs, Seljateigshjáleigu og Móa ásamt yfirlýsingu um staðfestingu á hnitsetningu landamerkja Seljateigs, Seljateigshjáleigu, Kollaleiru og Sléttu. Lagður fram hnitsettur landamerkja uppdráttur jarðanna.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir landskipti og landamerki og felur bæjarstjóra undirritun samninga. Jafnframt vísar nefndin samningi og yfirlýsingu til kynningar í bæjarráði.

  12. 12. Beiðni um framlengingu á geymsluleyfi starfsmannabúða að Haga 2021-2022

    Mál 2204119 Allur ferill málsins

    Lagt fram bréf Ormarrs Örlygssonar fh. Alcoa Fjarðaál, dagsett 19. apríl 2022, þar sem óskað er eftir framlengingu á leyfi vegna stöðu starfsmannabúðanna að Högum til 1. júlí 2022.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir framlengingu á stöðu starfsmannabúðanna á sömu forsendum og árið 2020 og miðast það við þann fjölda vinnubúðaeininga sem var á svæðinu þegar stöðuleyfið rann út þann 1. júlí 2021.

  13. 13. Viðhald vega í Mjóafirði 2022

    Mál 2204096 Allur ferill málsins

    Lagt fram erindi Sigfúsar Vilhjálmssonar vegna viðhalds vega í Mjóafirði, dagsett 17. apríl 2022. Þó einhverju viðhaldi hafi verið sinnt í Mjóafirði er enn margt sem betur má fara.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd þakkar bréfið og felur sviðsstjóra framkvæmdasviðs að fylgja því eftir hjá Vegagerðinni.

  14. 14. Endurskoðun á hámarkshraða á Breiðdalsvík

    Mál 2204046 Allur ferill málsins

    Lagt fram erindi Helgu Rakelar Arnardóttur, dagsett 5. apríl 2022, varðandi endurskoðun á hámarkshraða á Breiðdalsvík. Bent er á að merkingar vegna hámarkshraða vanti þó gert sé ráð fyrir 40 km/klst. hámarkshraða, þá er lagt til að hámarkshraði í verði lækkaður í 20 til 25 km/klst. í íbúðargötum.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd þakkar erindið og felur sviðsstjóra framkvæmdasviðs að koma upp merkingum vegna hámarshraða í samræmi við umferðarsamþykkt á Breiðdalsvík en innan þéttbýlis er gert ráð fyrir 40 km/klst. annarsstaðar en frá Selnesi að Sólvöllum þar sem hámarkshraði er 30 km/klst. Nefndin mun taka ábendingar til athugunar við næstu endurskoðun umferðarsamþykktar.

  15. 15. Framkvæmdarsvið verkefni 2022

    Mál 2204123 Allur ferill málsins

    Lagt fram minnisblað um framkvæmdir ársins 2022 til kynningar.

  16. 16. Framkvæmdarsvið verkefni 2022

    Mál 2204123 Allur ferill málsins

    Lagt fram minnisblað varðandi það að Hitaveita Fjarðabyggðar bjóði íbúum Eskifjarðar upp á að endurnýja varmaskipti gegn greiðslu, dagsett 22. apríl 2022.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir framlagðar tillögur og felur forstöðumanni veitna að auglýsa þjónustuna samkvæmt minnisblaðinu.

  17. 17. Fundargerðir Heilbrigðiseftirlits Austurlands 2022

    Mál 2202061 Allur ferill málsins

    Lögð fram til kynningar fundargerð 167. fundar Heilbrigðisnefndar Austurlands frá 6. apríl síðastliðnum.