NefndirEigna-, skipulags- og umhverfisnefnd
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd, fundur 311
2. maí 2022, kl. 16:00 til 16:45, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Valur Sveinsson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (7)
Fundinn sátu
- Eydís Ásbjörnsdóttir, formaður
- Daði Benediktsson, varamaður
- Kamma Dögg Gísladóttir, aðalmaður
- Magnús Karl Ásmundsson, varamaður
- Kristjana Guðmundsdóttir, varamaður
- Árni Björn Guðmundarson, áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Valur Sveinsson, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarstjórn, fundur 331 liður 5
Fundargerðir eigna- skipulags- og umhverfisnefndar teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.
Óskað var eftir í upphafi fundar að fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar frá 2. maí, yrði tekin á dagskrá fundar með afbrigðum.
Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar frá 2. maí staðfest með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Vorbæklingur 2022
Mál 2204081 Allur ferill málsins
Lögð fram drög að vorbækling Fjarðabyggðar 2022 til yfirferðar. Lagt er til að vorbæklingurinn verði áfram á rafrænu formi í anda umhverfis- og loftlagsstefnu Fjarðabyggðar. Stefnt er að útgáfu vorbæklingsins 12. maí.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir drögin.
-
2. Stækkun Mjóeyrarhafnar - annar áfangi, umhverfismat
Mál 2204067 Allur ferill málsins
Lögð fram beiðni Skipulagsstofnunar um umsögn um matsáætlun Fjarðabyggðarhafna vegna 2. áfanga Mjóeyrarhafnar skv. 21. gr. laga um umhverfismat framkvæmda og áætlana nr. 111/2021 og 12. gr. reglugerðar nr. 1381/2021 um umhverfismat framkvæmda og áætlana.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd gerir ekki athugasemd við matsáætlunina.
-
3. 755 Sævarendi 2 - Beiðni um stækkun lóðar og framkvæmdaleyfi
Mál 2204117 Allur ferill málsins
Lögð fram að nýju umsókn Malbikunarstöðvar Austurlands ehf um stækkun lóðar fyrirtækisins að Sævarenda 2 á Stöðvarfirði ásamt beiðni um framkvæmdaleyfi vegna stækkunarinnar. Gert er ráð fyrir að lóðin verði sléttuð og malbikuð fyrir þjónustumiðstöð fiskeldis vegna samsetningar og viðhalds fiskeldiskvía með vegtengingu við smábátahöfn og hafnarsvæði. Stækkun lóðar hefur verið samþykkt.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir útgáfu framkvæmdaleyfis þegar öll tilskilin gögn liggja fyrir.
-
4. 755 Óseyri - Framkvæmdaleyfi, efnistaka
Mál 2204093 Allur ferill málsins
Lögð fram umsókn Fjarðabyggðar um framkvæmdaleyfi, dagsett 13. apríl 2022, ásamt fylgigögnum vegna fyrirhugaðrar 5.000 m3 efnistöku í malarnámu við Óseyri í Stöðvarfirði.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir útgáfu framkvæmdaleyfis.
-
5. 730 Austurvegur 24 - Beiðni um endurnýjun á lóðarleigusamningi
Mál 2204108 Allur ferill málsins
Lagt fram bréf Lagaskila lögmannstofu, dagsett 13. apríl 2022, þar sem óskað er eftir endurnýjun lóðarleigusamnings Bakkagerðis ehf um lóð fyrirtækisins að Austurvegi 24 á Reyðarfirði. Lagt fram deiliskipulag svæðisins.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir að lóðarleigusamningur verði gerður í samræmi við deiliskipulag. Kvöð verði um gangstíg eins og deiliskipulag gerir ráð fyrir.
-
6. Ósk um ýmsar framkvæmdir í Breiðdal
Mál 2204078 Allur ferill málsins
Lagt fram erindi framkvæmdastjóra Goðaborgar ehf þar sem óskað er eftir úrbótum á götum í Breiðdal auk þess sem spurst er fyrir um stöðu verkefnisins Breiðtorg á Breiðdalsvík. Bæjarráð hefur vísað erindinu til eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar til skoðunar.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd vísar beiðni um úrbætur til framkvæmdasviðs skoðunar og fjárhagsáætlunargerðar eins og við á. Nefndin felur atvinnu- og þróunarstjóra að boða eigendur húsa við Breiðatorg til fundar til að ákvarða næstu skref vegna uppbyggingar torgsins.
-
7. Framkvæmdarsvið verkefni 2022
Mál 2204123 Allur ferill málsins
Lögð fram niðurstaða verðkönnunar framkvæmdasviðs varðandi jarðvinnu við að endurnýja asbestlögn frá Ingunnarveitu að gatnamótum Leiruvegar og Hafnarnausts. Eitt tilboð barst frá Dal-Björgu.
Tilboð er innan fjárhagsáætlunar.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir að tilboði bjóðanda verði tekið.