Beint í efni
Hnotskurninn

Mál2022

Ósk um ýmsar framkvæmdir í Breiðdal

Mál 2204078 Fyrst á dagskrá 25. apríl 2022, síðast 5. maí 2022. 4 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn, Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd.

Í heiti málsins: Breiðdalsvík og Breiðdalur

Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.

Ferill málsins

  • Málið var á dagskrá fundar
  • Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
Leið málsins í tímaröð, frá vinstri til hægri. Hver lína er ein nefnd eða ráð. Feita línan tengir fundina þar sem málið sjálft var á dagskrá. Guli reiturinn er síðasta færslan. Ýttu á punkt til að sjá færsluna.
  1. 2022

    Bæjarráð, fundur 751 liður 4

    Framlagt erindi framkvæmdastjóra Goðaborgar þar sem óskað er eftir úrbótum á götum í Breiðdal auk þess sem spurst er fyrir um stöðu verkefnisins Breiðtorg á Breiðdalsvík.

    Bæjarráð vísar erindi til eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar til skoðunar.

  2. Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd, fundur 311 liður 6

    Lagt fram erindi framkvæmdastjóra Goðaborgar ehf þar sem óskað er eftir úrbótum á götum í Breiðdal auk þess sem spurst er fyrir um stöðu verkefnisins Breiðtorg á Breiðdalsvík. Bæjarráð hefur vísað erindinu til eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar til skoðunar.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd vísar beiðni um úrbætur til framkvæmdasviðs skoðunar og fjárhagsáætlunargerðar eins og við á. Nefndin felur atvinnu- og þróunarstjóra að boða eigendur húsa við Breiðatorg til fundar til að ákvarða næstu skref vegna uppbyggingar torgsins.

  3. Bæjarstjórn, fundur 331 liður 2.4

    Fundargerðin „Bæjarráð - 751“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is

  4. Bæjarstjórn, fundur 331 liður 5.6

    Fundargerðin „Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 311“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is