Bæjarráð, fundur 752
2. maí 2022, kl. 08:30 til 09:45, í Molanum fundarherbergi 1 og 2. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)
Fundinn sátu
- Sigurður Ólafsson, formaður
- Pálína Margeirsdóttir, varaformaður
- Ragnar Sigurðsson, aðalmaður
- Rúnar Már Gunnarsson, áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Jón Björn Hákonarson, bæjarstjóri
- Gunnar Jónsson, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarstjórn, fundur 331 liður 3
Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.
Fundargerð bæjarráðs frá 2. maí að undanskildum lið 2 og 3 staðfest með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Dalborg, hönnun á viðbyggingu
Mál 2002039 Allur ferill málsins
Undirritaður verksamningur lagður fram til kynningar um framkvæmdir við viðbyggingu leikskólans Dalborgar á Eskifirði.
-
2. 755 Sævarendi 2 - Beiðni um stækkun lóðar og framkvæmdaleyfi
Mál 2204117 Allur ferill málsins
Vísað frá eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd til afgreiðslu bæjarráðs umsókn Malbikunarstöðvar Austurlands ehf./Partasölu-Austurlands sf., um stækkun lóðar partasölunnar að Sævarenda 2 á Stöðvarfirði, ásamt beiðni um framkvæmdaleyfi vegna stækkunarinnar. Sömu aðilar standa að báðum fyrirtækjunum. Gert er ráð fyrir að lóðin verði sléttuð og malbikuð fyrir þjónustumiðstöð fiskeldis vegna samsetningar og viðhalds fiskeldiskvía með vegtengingu við smábátahöfn og hafnarsvæði. Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd afgreiðir framkvæmdarleyfisumsóknina að fenginni afgreiðslu bæjarráðs á stækkun lóðar.
Bæjarráð samþykkir stækkun lóðarinnar.
-
3. 730 Seljateigur, stofnun lands
Mál 1909011 Allur ferill málsins
Vísað frá eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd til kynningar bæjarráðs afgreiðslu nefndarinnar á samningi um landskipti Seljateigs, Seljateigshjáleigu og Móa ásamt yfirlýsingu um staðfestingu á hnitsetningu landamerkja Seljateigs, Seljateigshjáleigu, Kollaleiru og Sléttu. Lagður fram hnitsettur landamerkjauppdráttur jarðanna.
Bæjarráð felur bæjarritara og sviðsstjóra umhverfissviðs að fara yfir forsendur samnings frekar. Vísað til staðfestingar bæjarstjórnar.
-
4. Þórsmörk - leigusamningur
Mál 1711182 Allur ferill málsins
Samvinnufélag útgerðarmanna í Neskaupstað hefur keypt Þórsmörk í Neskaupstað af Listasmiðjunni sf. og tekið við skyldum og réttindum gagnvart Fjarðabyggð um leigu húsnæðis. Lagður fram viðauki við samning um Þórsmörk í Neskaupstað, vegna endurgreiðslu á endurbótakostnaði við húsið.
Bæjarráð samþykkir viðaukann fyrir sitt leyti og felur bæjarstjóra undirritun hans.
-
5. Reglur um launað námsleyfi starfsmanna leikskóla Fjarðabyggðar
Mál 2203088 Allur ferill málsins
Framlagðar uppfærðar reglur um launuð námsleyfi starfsmanna leikskóla Fjarðabyggðar til staðfestingar en um minniháttar breytingu er að ræða á umsóknarfresti fyrir haustönn. Annað efni reglanna er óbreytt.
Bæjarráð samþykkir reglurnar fyrir sitt leyti og vísar þeim til staðfestingu bæjarstjórnar.
-
6. Franskir dagar 2022
Mál 2204218 Allur ferill málsins
Rætt um fyrirkomulag Franskra daga 2022 og heimsókn fulltrúa frá Gravelines.
Bæjarráð felur bæjarritara og bæjarstjóra að hefja undirbúning móttöku frakkanna og bjóða fulltrúum á Franska daga.
-
7. Sveitarstjórnarkosningar 2022
Mál 2203141 Allur ferill málsins
Farið yfir skipan kjörstjórna fyrir sveitarstjórnarkostningar 14. maí nk.
Bæjarráð vísar kjörstjórnarskipan vegna kosninganna til afgreiðslu bæjarstjórnar.
-
8. Fundagerðir Náttúrustofu Austurlands 2022
Mál 2204177 Allur ferill málsins
Fundargerðir 1. og 2. fundar stjórnar Náttúrustofu Austurlands 2022 auk ársreiknings fyrir árið 2021, lagur fram til kynningar.
-
9. Hafnarstjórn - 277
Fundargerð hafnarstjórnar frá 25. apríl lögð fram til afgreiðslu.
- 9.1 Viljayfirlýsing um samstarf - TRÚNAÐARMÁL2107010
- 9.2 Beiðni um nýja flotbryggju2204049
- 9.3 Fundargerðir Hafnasambands Íslands 20222202086
- 9.4 Aðalfundur Fiskmarkaðs Austurlands 20222204084
- 9.5 Umsókn um undanþágu frá hafnsöguskyldu - MV Freyja2204113
-
10. Menningar- og nýsköpunarnefnd - 45
Fundargerð menningar- og nýsköpunarnefndar frá 25. apríl lögð fram til afgreiðslu.
- 10.1 Auglýsingar Fjarðabyggðar - Sumar 20222204136
- 10.2 Verkefni menningarstofu 20222109214
- 10.3 Starfsemi og þjónusta safna Fjarðabyggðar sumarið 20222204141
- 10.4 Verkefni atvinnu- og þróunarstjóra 20222204127
- 10.5 Viðgerð og endurbætur á Valhöll2203079
- 10.6 Útgáfa á sögu Fáskrúðsfjarðar2006128
- 10.7 Svæðisskipulagsnefnd 20212102084
-
11. Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 310
Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar frá 25. apríl, lögð fram til afgreiðslu.
- 11.1 Vorbæklingur 20222204081
- 11.2 730 Seljateigur - Framkvæmdaleyfi, skógrækt2204089
- 11.3 730 Seljateigshjáleiga - Framkvæmdaleyfi, skógrækt2203192
- 11.4 755 Sævarendi 2 - Beiðni um stækkun lóðar og framkvæmdaleyfi2204117
- 11.5 740 Miðgarður 16A - Umsókn um byggingaráform, stækkun2203086
- 11.6 735 Árdalur 2-18 - Umsókn um byggingarleyfi raðhús2109213
- 11.7 730 Austurvegur 24 - Beiðni um endurnýjun á lóðarleigusamningi2204108
- 11.8 735 Svínaskálahlíð 7 - umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi2204035
- 11.9 740 Tröllavegur 4 - Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi2203115
- 11.10 740 Kirkjumelur - umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi2204028
- 11.11 730 Seljateigur, stofnun lands1909011
- 11.12 Beiðni um framlengingu á geymsluleyfi starfsmannabúða að Haga 2021-20222204119
- 11.13 Viðhald vega í Mjóafirði 20222204096
- 11.14 Endurskoðun á hámarkshraða á Breiðdalsvík2204046
- 11.15 Framkvæmdarsvið verkefni 20222204123
- 11.16 Framkvæmdarsvið verkefni 20222204123
- 11.17 Fundargerðir Heilbrigðiseftirlits Austurlands 20222202061
-
12. Íþrótta- og tómstundanefnd - 97
Fundargerð íþrótta- og tómstundanefndar frá 25.apríl, lögð fram til afgreiðslu.
- 12.1 Svæðisskipulagsnefnd 2021
- 12.2 Skíðasvæðið Odsskarði 2022-2023
- 12.3 Starfs- og fjárhagsáætlun íþrótta- og tómstundanefndar 2022
- 12.4 Íþróttamiðstöð Breiðdal - kostnaður við líkamsrækt
- 12.5 Íþrótta- og tómstundasvið rekstur 2022